Umhverfi og samfélag
Umhverfisstefna Norðuráls
Norðurál leggur áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið. Stöðugt er unnið að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Norðurál stuðlar að aukinni umhverfisvitund og þátttöku starfsfólks í umbótum. Norðurál uppfyllir kröfur sem settar eru fram í starfsleyfi, lögum og reglum um umhverfismál.
Umhverfismarkmið okkar eru:
· Lágmörkun losunar
· Starfsfólk þekki umhverfisáhrif starfseminnar
· Ábyrg endurnýting og förgun
55% minni losun árið 2030
Norðurál setti það markmið að losun gróðurhúsalofttegunda, utan viðskiptakerfis ESB, skyldi árið 2030 hafa dregist saman um a.m.k. 40% miðað við árið 2015. Árið 2023 nam samdráttur í losun 45% og er upphaflegu markmiði því þegar náð, sjö árum á undan áætlun. Við stefnum að enn frekari árangri og setjum nú markið á 55% samdrátt árið 2030.
Samfélagsskýrsla Norðuráls
Árið 2023 var Norðuráli bæði farsælt og árangursríkt. Við héldum áfram að stíga mikilvæg skref í átt að kolefnishlutleysi, betri rekstri og minni sóun með þátttöku í ýmsum verkefnum. Þannig stefndum við markvisst í rétta átt að því að vera til fyrirmyndar í framleiðslu áls.
Mest rannsakaða svæði landsins
Nánasta umhverfi okkar í Hvalfirði er eitt mest rannsakaða svæði á Íslandi. Óháðir aðilar hafa eftirlit með um 100 mæliþáttum á stóru svæði til að ganga úr skugga um að starfsemin á Grundartanga hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið.
Smelltu á vöktunarstaði til að fá nánari upplýsingar um vöktun á loftgæðum, ferskvatni og sjó, gróðri og húsdýrum.
Grænt bókhald
Norðurál heldur Grænt bókhald, sem er nákvæm skrá yfir allt efni sem kemur til álversins og allt sem fer frá því. Markmið okkar er að takmarka alla efnisnotkun eins og kostur er og gera ítarlega grein fyrir því hvað verður um öll óæskileg efni.
Stór og smá samfélagsverkefni
Ár hvert styrkir Norðurál tugi stórra og smárra samfélagsverkefna. Til þess að óska eftir samfélagsstyrk frá Norðuráli er best að senda umsókn á netfangið styrkur@nordural.is með helstu upplýsingum um verkefnið og áætlaða fjárþörf.
Styrkjanefnd fer yfir umsóknir fjórum sinnum á ári.