Stefnur Norðuráls
Gæðastefna
Norðurál framleiðir ál samkvæmt þörfum viðskiptavina á ábyrgan, öruggan og samkeppnisfæran hátt. Lögð er áhersla á gæðavitund starfsfólks og þátttöku í stöðugum umbótum. Norðurál er ábyrgur þegn í samfélaginu og uppfyllir lög og reglur um starfsemi fyrirtækisins. Gæðastjórnunarkerfi er reglulega rýnt og endurbætt.
Gæðamarkmið:
- Ánægðir viðskiptavinir
- Skilvirk framleiðsla
- Framúrskarandi afurðir
Umhverfisstefna
Norðurál leggur áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið. Stöðugt er unnið að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Norðurál stuðlar að aukinni umhverfisvitund og þátttöku starfsfólks í umbótum. Norðurál uppfyllir kröfur sem settar eru fram í starfsleyfi, lögum og reglum um umhverfismál.
Umhverfismarkmið:
- Lágmörkun losunar
- Starfsfólk þekki umhverfisáhrif starfseminnar
- Ábyrg endurnýting og förgun
Öryggis- og heilbrigðisstefna
Norðurál hefur öryggi og heilbrigði í fyrirrúmi. Starfsfólk þekki áhættur og örugg vinnubrögð og að ekkert verk eigi að vinna við ótryggar aðstæður. Áhersla er lögð á virka þátttöku starfsfólks í forvörnum og umbótum. Norðurál uppfyllir lög og reglur um öryggis- og heilbrigðismál.
Öryggis- og heilbrigðismarkmið:
- Slysalaus vinnustaður
- Heilsuvernd starfsfólks
- Þátttaka starfsfólks í forvörnum
Mannréttinda og jafnréttisstefna
Norðurál hagar starfsemi sinni og viðskiptum með virðingu fyrir mannréttindum. Norðurál leggur áherslu á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum eða uppruna. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og aðrar kröfur um mannréttindi og jafnrétti.
Mannréttinda- og jafnréttismarkmið:
- Forvarnir gegn einelti, áreitni og öðru ofbeldi
- Stuðla að jöfnun kynjahlutfalla
- Jöfn starfskjör fyrir sambærileg störf
Gagna- og upplýsingastjórnunarstefna
Norðurál leggur áherslu á að gögn fyrirtækisins séu ávallt áreiðanleg og tiltæk. Vinnubrögð við meðhöndlun gagna og upplýsinga eru samræmd og vistun þeirra örugg. Norðurál uppfyllir lagalegar kröfur um meðhöndlun gagna og upplýsinga.
Gagna- og upplýsingastjórnunarmarkmið:
- Örugg og samræmd vistun gagna
- Áreiðanlegar upplýsingar úr gögnum fyrirtækisins
- Þekking starfsfólks á gagna- og upplýsingastjórnun
Innkaupastefna
Norðurál leggur áherslu á að öll innkaup séu unnin af heilindum, ábyrgð og hagkvæmni. Norðurál hagar starfsemi sinni þannig að við innkaup er tekið tillit til gæða-, umhverfis-, öryggis- og heilsusjónarmiða. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og reglur um innkaup er gilda hverju sinni.
Innkaupamarkmið:
- Ábyrgð, heiðarleiki og hagkvæmni
- Gæði og stöðugleiki reksturs tryggð
- Þekking starfsfólks á ábyrgum innkaupum