
Umhverfisvænni og verðmætari framleiðsla
Ný framleiðslulína í álveri Norðuráls eykur verðmæti framleiðslunnar án þess að meira verði framleitt af áli. Verið er að færa virðisaukandi framleiðslu, sem hingað til hefur farið fram erlendis, til Íslands. Með því að nota íslenska orku er kolefnisspor framleiðslunnar mun minna en ef hún færi fram erlendis.
Álstangir
Í nýrri framleiðslulínu eru framleiddar álstangir (e.billets). Stangirnar eru sívalningar úr áli sem mótaðir eru með þrýstimótun. Álstangir eru eftirsóttar af evrópskum viðskiptavinum, en ál er lykilefni við framleiðslu t.d. rafbíla, sólarrafhlaða, flugvéla og umhverfisvænna bygginga. Með framleiðslu álstanga er Norðurál að færa sig nær viðskiptavinum sínum og jafnframt færa verðmætaaukninguna til Íslands.
Minna kolefnisspor
Norðurál notar íslenska raforku við alla framleiðslu, en hingað til hafa álhleifar Norðuráls verið bræddir í stangir í Evrópu, þar sem raforkaframleiðsla hefur stærra kolefnisspor. Engin aukalosun verður við framleiðslu álstanga hjá Norðuráli og orkuþörf verður mun minni en ef þær væru steyptar erlendis. Áætlaður orkusparnaður eru um 40%.
Framkvæmdin
Um var að ræða fjárfestingarverkefni upp á um 16 milljarða króna. Vegna jákvæðra umhverfisáhrifa var framkvæmdin fjármögnuð með grænni fjármögnun hjá Arion banka.
Í stuttu máli
Með nýrri framleiðslulínu verður langstærstur hluti þess áls sem Norðurál framleiðir virðisaukandi vara, álstangir og álblöndur.
Í stuttu máli:
• Kostnaður: 16 milljarðar króna
• Störf við framkvæmdir: 80-90 í tvö ár
• Fjöldi nýrra starfa: 40
• Aukning útflutningstekna: 3-4 milljarðar króna á ári
• Aukin raforkunotkun: 10 MW
• Bætt orkunýting: 40%