Störf í boði

Framtíðin er spennandi í álframleiðslu á Íslandi og mun framþróun grænnar álframleiðslu hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.

Íslenski áliðnaðurinn er ein af stærstu útflutningsgreinum landsins og Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Á hverju ári notum við endurnýjanlega raforku til að framleiða um 320.000 tonn af áli fyrir erlenda markaði.

Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um störf hjá fyrirtækinu. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Norðurál er jafnlaunavottaður vinnustaður og handhafi gullmerkis PWC.

Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af meginhlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að auka áreiðanleika búnaðar og halda bilunum í lágmarki með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. 

Sækja um

Rafvirkjar og vélvirkjar

Norðurál leitar að áreiðanlegum rafvirkjum og vélvirkjum til starfa í vaktavinnu. Unnið er á 8 tíma vöktum, dag-, kvöld- og næturvöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.

Sækja um

Almenn umsókn

Norðurál ræður hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem fær hlýjar móttökur og viðeigandi starfsþjálfun. Við fögnum fjölbreytilegum bakgrunni og reynslu fólksins okkar og komum jafnt fram við alla. Við tökum með ánægju við umsóknum hvenær sem er og það er aldrei að vita nema við finnum þér starf sem hentar.

Sækja um

Ráðningarferlið

Umsóknir eru metnar og hæfum umsækjendum er boðið í viðtal. Við leitum umsagna hjá a.m.k. tveimur umsagnaraðilum sem umsækjandi gefur upp. Þar sem Norðurál er vímuefnalaus vinnustaður er þess jafnframt krafist að allt starfsfólk sem Norðurál býður starf taki lyfjapróf sem framkvæmt er af heilbrigðisstarfsmanni. Umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðið hefur verið í starfið.