Útskrift frá Stóriðjuskóla Norðuráls

Fimmtán nemendur útskrifuðust 4. júní úr framhaldnámi Stóriðjuskóla Norðuráls, en þetta er fimmti hópurinn sem útskrifast úr framhaldsnáminu. Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 og þaðan hafa 177 nemendur útskrifast.  Verðlaun fyrir góðar framfarir og ástundun hlaut Sigurþór Frímannsson.

Markmiðið er að þeir starfsmenn fyrirtækisins sem ljúka náminu öðlist meiri starfsánægju og sjálfstraust með aukinni færni, þekkingu og skilningi á lykilferlum við örugga og hagkvæma framleiðslu á áli. Að sama skapi eykur námið verðmætasköpun, styrkir samkeppnisstöðu fyrirtækisins og gerir vinnustaðinn eftirsóknarverðari.

Boðið er upp á grunn- og framhaldsnám við skólann sem hvort um sig nær yfir þrjár annir. Grunnnámið er fyrir ófaglærða starfsmenn. Framhaldsnámið er ætlað iðnaðarmönnum og þeim sem hafa útskrifast úr grunnnáminu.

Norðurál er í samstarfi við Símenntun á Vesturlandi og Fjölbrautarskóla Vesturlands um námið, en auk þess koma sérfræðingar frá Norðuráli að kennslunni.

Við óskum útskriftarnemunum okkar til hamingju með áfangann og frábæran árangur!

Útskriftarnemarnir Sveinung Eidem, Guðjón J. Kristjánsson, Guðni Karl Brynjólfsson, Sverrir Ingi Hallgrímsson, Sigurður Böðvarsson, Styrmir Þór Tómasson, Hólmar Eyfjörð Hreggviðsson, Tómas Helgi Tómasson, Þorsteinn Jónsson, Erlendur Ottesen, Sigurþór Frímannsson, Sjöfn Jónsdóttir, Uchechukwu Michael Eze, Pálmi Gunnlaugsson og Hannes Örn Stefánsson. Með þeim á myndinni er Sigrún Helgadóttir, frkvstj. Norðuráls Grundartanga, Magnús Smári Snorrason, fræðslustjóri Norðuráls, og Guðrún Vala Elísdóttur, frkvstj. Símenntunar á Vesturlandi.