Nýjar áherslur

„Norðurál er um­bóta­sinnað fyr­ir­tæki og við erum alltaf að leita leiða til að gera bet­ur. Á það jafnt við um ör­ygg­is-, um­hverf­is- og gæðamál, fram­leiðslu eða aðra þætti í rekstr­in­um,“ seg­ir Sigrún Helga­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Norðuráls Grund­ar­tanga í viðtali við Morgunblaðið.

Áliðnaður­inn í land­inu stend­ur vel um þess­ar mund­ir; af­kom­an er ágæt og eft­ir­spurn eft­ir fram­leiðslunni mik­il. „Við erum í sterkri stöðu og höf­um for­skot í sam­keppn­inni. Fólk og fyr­ir­tæki hafa mikl­ar og vax­andi áhyggj­ur af lofts­lags­mál­um og horfa í aukn­um mæli á kol­efni­á­hrif fram­leiðsluþátta.

Morgunblaðið, 12. desember 2021