Norðurál og Landsvirkjun undirrita rafmagnssamning

Landsvirkjun og Norðurál Grundartangi ehf. náðu í maí síðastliðnum samkomulagi um að framlengja rafmagnssamning fyrirtækjanna fyrir 161 MW, sem var upphaflega gerður 1997, á kjörum sem endurspegla raforkuverð á mörkuðum. Undirritun samningsins beið þess að forskoðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) lyki. Þeirri forskoðun er nú lokið með jákvæðri niðurstöðu og hafa samningsaðilar því undirritað fyrirliggjandi samning, sem er enn háður skilyrðum.

Undirritaður samningur verður nú sendur til ESA til formlegrar og endanlegrar umfjöllunar. Búist er við afgreiðslu stofnunarinnar fyrir áramót.

Hinn framlengdi samningur er til fjögurra ára og hljóðar upp á 161 MW sem er nærri þriðjungur af orkuþörf álversins á Grundartanga. Endurnýjaður samningur tekur gildi í nóvember árið 2019 og gildir til loka árs 2023. Núgildandi samningur verður áfram í gildi til loka október 2019.

Endurnýjaður samningur er tengdur við markaðsverð raforku á Nord Pool raforkumarkaðnum og kemur það í stað álverðstengingar í gildandi samningi.