14. maí, 2018
Ársfundur Samáls 2018
„Álið verður aftur nýtt“ er yfirskrift ársfundar Samáls í Kaldalóni í Hörpu 16. maí. Fjallað er um stöðu áliðnaðar á Íslandi og á heimsvísu og hvernig má gera betur í söfnun og endurvinnslu áls. Hönnuðir segja frá gerð nytjahluta úr endurunnu áli í tilefni af vel heppnuðu söfnunarátaki sprittkerta og verða munirnir til sýnis. Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffi og veitingar.
Dagskrá:
8:00 –  Morgunverður. 
8:30 –  Ársfundur.
- Staða og framtíð íslensks áliðnaðar Ragnar Guðmundsson stjórnarformaður Samáls
 - Ávarp – Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðarráðherra
 - Horfur í áliðnaði á heimsvísu – Justin Hughes frá alþjóðlega greiningarfyrirtækinu CRU
 - Tækifæri í endurvinnslumálum á Íslandi – Líf Lárusdóttir verkefnastjóri hjá Gámaþjónustunni
 - Nytjahlutir verða til úr áli í sprittkertum – Ingibjörg Hanna, Olga Ósk og Studio Portland
 - Ál og fiskur – Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls
 
10:00 – Kaffispjall að loknum fundi.
Fundargestum gefst kostur á að skoða hönnunarmuni frá sýningunni #endurvinnumálið sem sett var upp fyrir afmælisopnun Hönnunarmars, en þar vinna fjögur hönnunarteymi nytjahluti sem framleiddir eru úr endurunnu áli. Tilefnið er endurvinnsluátak áls í sprittkertum sem efnt var til yfir hátíðarnar. Undirtektir almennings voru frábærar og varð það til þess að söfnun sprittkerta er orðinn varanlegur kostur í endurvinnsluflóru landsmanna. Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar. Fundarstjóri er Bjarni Már Gylfason.