Starfsfólkið

Við komum úr öllum áttum

Mannréttinda og jafnréttisstefna: Norðurál hagar starfsemi sinni og viðskiptum með virðingu fyrir mannréttindum. Norðurál leggur áherslu á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum eða uppruna. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og reglur um mannréttindi og jafnrétti.

Mannréttinda- og jafnréttismarkmið: Forvarnir gegn einelti, áreitni og öðru ofbeldi. Stuðla að jöfnun kynjahlutfalls. Jöfn starfskjör fyrir sambærileg störf.

Störf í boði
Uppfæra umsókn
Reglur um persónuvernd

Hæfni og metnaður

Norðurál ræður hæfa og metnaðarfulla starfsmenn samkvæmt faglegu ráðningarferli. Nýir starfsmenn fá hlýjar móttökur og viðeigandi starfsþjálfun. Allir starfsmenn skilja hlutverk sitt og ábyrgð og fá reglulega og uppbyggilega endurgjöf.

Við erum stolt af samstarfsfólki okkar, fyrirtækinu og þeim árangri sem við höfum náð. Við erum jafnframt hluti af stærra samfélagi sem nær til fjölskyldna okkar, nágrennis og alls umhverfisins. Við erum stolt af samfélagi okkar og viljum að samfélagið sé stolt af okkur.

Þjálfun og starfsþróun

Starfsfólk Norðuráls hefur margvísleg tækifæri til menntunar og þróunar í starfi. Þörf fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Efnilegir starfsmenn eru hvattir til áframhaldandi þróunar og þjálfunar.

Norðurál starfrækir stóriðjuskóla með það að markmiði að starfsfólk öðlist meiri starfsánægju og sjálfstraust með aukinni færni, þekkingu og skilningi á lykilferlum við örugga og hagkvæma framleiðslu á áli. Að sama skapi eykur námið verðmætasköpun, styrkir samkeppnisstöðu fyrirtækisins og gerir vinnustaðinn eftirsóknarverðari.

Starfsmannafélagið STNA

Starfsmannafélag Norðuráls, STNA, stýrir félagsstarfi og skipuleggur skemmtanir, ferðalög, fræðslu og aðra viðburði. Félagið hefur veg og vanda af jólaundirbúningi, árshátíð og sumarhátíð.

Öll saman!

Slagorðið – Öll saman! – vísar til þess að öryggi er samstarfsverkefni okkar allra. Við gætum hvers annars og hjálpumst að við að leysa hvers kyns verkefni með skynsamlegasta og öruggasta hætti.

Öryggis- og heilbrigðisstefna: Norðurál hefur öryggi og heilbrigði í fyrirrúmi. Starfsfólk þekki áhættur og örugg vinnubrögð og að ekkert verk eigi að vinna við ótryggar aðstæður. Áhersla er lögð á virka þátttöku starfsfólks í forvörnum og umbótum. Norðurál uppfyllir lög og reglur um öryggis- og heilbrigðismál.

Öryggis- og heilbrigðismarkmið:   Öruggur vinnustaður ·Heilsuvernd starfsfólks ·Þátttaka starfsfólks í forvörnum