Stjórnarhættir

Stjórnarhættir Norðuráls GOV-1

Norðurál starfar eftir skýrum og ábyrgum stjórnarháttum sem byggja á gildandi lögum, alþjóðlegum viðmiðum og leiðbeiningum frá móðurfélaginu, Century Aluminum. Stjórn félagsins fer með stefnumótun og eftirlit með starfsemi og ber ábyrgð á því að rekstur og innra eftirlit séu í samræmi við lög, reglur og samþykktir. Áhersla er lögð á gagnsæi, trausta ákvarðanatöku og virkt samspil milli stjórnar, framkvæmdastjórnar og lykilstjórnenda.

Stjórn Norðuráls Grundartanga ehf. fer með æðsta vald í málefnum félagsins á hluthafafundum. Stjórn ber ábyrgð á að skipulag og rekstur Norðuráls Grundartanga ehf. sé í góðu ástandi, framþróun og langtímamarkmiðum og hefur eftirlit með daglegum rekstri þess.

Stjórnina skipa þau John DeZee stjórnarformaður, Gunnar Guðlaugsson, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Robert Hoffman og Sigrún Helgadóttir.

Fimm stjórnarfundir voru haldnir árið 2024. Allir stjórnarmeðlimir voru viðstaddir fundina sem og fjármálastjóri, fulltrúi frá lögfræðiteymi Century og aðallögfræðingur félagsins.

Forstjóri hefur yfirumsjón með daglegum rekstri Norðuráls Grundartanga í samræmi við stefnur og reglur settar af stjórn félagsins. Forstjóri skal m.a. reglulega upplýsa stjórn um stöðu fjármála, skipulags, framþróunar og reksturs hjá félaginu. Forstjóri félagsins skal starfa með heiðarleika og hagsmuni Norðuráls Grundartanga að leiðarljósi.

Gunnar Guðlaugsson er forstjóri Norðuráls Grundartanga.

Skipurit

Starfsemi Norðuráls skiptist í átta svið sem heyra undir skrifstofu forstjóra.
Ítarlegar upplýsingar um innra skipulag fyrirtækisins er að finna hér.

Stjórnskipulag og upplýsingagjöf um sjálfbærni GOV-2

Norðurál hefur komið á fót skýru skipulagi um utanumhald sjálfbærnimála og upplýsingagjöf í samræmi við ESRS staðla. Forstjóri félagsins ber ábyrgð á heildarstefnu og samþættingu sjálfbærni í rekstur, ásamt framkvæmdastjórn, sem hefur daglega ábyrgð á framkvæmd, eftirfylgni og upplýsingagjöf tengdri sjálfbærni. Forstjóri og framkvæmdastjórn eru reglulega upplýst um stöðu mála, helstu áskoranir, tækifæri og framgang umbótaverkefna sem snerta sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð.

Sjálfbærnistýrihópur og innleiðing ESRS

Sjálfbærnistýrihópur Norðuráls fundar reglulega undir stjórn forstjóra. Í hópnum sitja lykilstjórnendur, þar á meðal framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs, framkvæmdastjóri samskipta- og samfélagsmála og yfirmaður sjálfbærnimála hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls. Hópurinn heldur utan um innleiðingu ESRS mælikvarða og tryggir að sjálfbærnimælingar séu réttmætar, rekjanlegar og samræmdar við kröfur regluverksins. Hlutverk hans felst einnig í því að bera ábyrgð á gagnasöfnun, innleiðingu mælikvarða og upplýsingaskyldu gagnvart hagaðilum og eftirlitsaðilum.

Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisnefnd

Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisnefnd Norðuráls hefur heildaryfirsýn yfir stefnu og markmið í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum og gegnir lykilhlutverki í rýni á árangri, eftirfylgni og upplýsingagjöf. Í nefndinni sitja fulltrúar framkvæmdastjórnar, öryggistrúnaðarmenn og öryggisfulltrúar. Hún fundar ársfjórðungslega og styðst við fagráð framleiðslustarfsfólks og sérfræðinga til að virkja víðtæka þátttöku í umbótaverkefnum.

Nefndin rýnir mælikvarða og skýrslugjöf til eftirlitsaðila, svo sem Umhverfisstofnunar og Vinnueftirlits, og skilar reglulegum samantektum til framkvæmdastjórnar og sjálfbærnistýrihópsins.

Reglubundin vöktun og upplýsingamiðlun

Mánaðarlegir umhverfisfundir, leiddir af umhverfissérfræðingi, eru haldnir með þátttöku framkvæmdastjórnar og lykildeilda. Þar er farið yfir helstu mælikvarða um losun, úrgang, rekstur hreinsibúnaðar og gæði hráefna. Frávik eru greind, umbótaaðgerðir skilgreindar og stöðug umbótamenning rækt.

Vikulega eru haldnir öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisfundir með stjórnendum og sérfræðingum, þar sem farið er yfir öryggisatvik, umhverfisábendingar og umbótaferli.

Árlega eru haldnir opnir upplýsingafundir með Umhverfisstofnun og vöktunaraðilum þar sem niðurstöður vöktunar eru kynntar. Starfsfólk er reglulega upplýst um árangur og áherslur sjálfbærnimála á innri miðlum og í deildarfundum.

Stefna, framkvæmd og árangurstengdir hvatar í sjálfbærnimálum GOV-3

Norðurál fylgir skýrri sjálfbærnistefnu sem endurskoðuð er árlega og kynnt starfsfólki á starfsdögum og í reglulegri innri fræðslu. Á hverju ári eru sett mælanleg undirmarkmið í umhverfismálum, m.a. um losun, úrgang og fræðslu, í samræmi við stefnu og yfirmarkmið félagsins.

Framgangur markmiðanna er metinn ársfjórðungslega á fundum framkvæmdastjórnar undir stjórn gæðastjóra.

Frammistaða í umhverfis- og sjálfbærnimálum hefur áhrif á árangurstengdar greiðslur. Allt starfsfólk getur átt rétt á bónus sem m.a. miðast við umhverfisárangur, og hjá sérfræðingum tengist einstaklingsbónus árangri í skilgreindum umbótaverkefnum.

Stefna og viðskiptamódel ESRS SBM-3

Viðskiptamódel Norðuráls byggir á álframleiðslu með lágu kolefnisspori þar sem notast er við 100% endurnýjanlega raforku. Sjálfbærni er lykilatriði í rekstri og hefur bæði áhrif á stefnumörkun og áhættustýringu fyrirtækisins.

Norðurál starfar samkvæmt vottaðri umhverfisstjórnun samkvæmt ISO 14001 staðli. Hluti af því kerfi er reglubundin umhverfisþáttagreining þar sem lykiláhrif rekstrarins á umhverfi eru greind og þeim forgangsraðað eftir umfangi og áhættu. Þeir umhverfisþættir sem skora hæst eru skilgreindir sem mikilvægir og rýndir árlega; aðrir þættir eru endurmetnir að lágmarki þriðja hvert ár. Greiningin fer fram í samstarfi við starfsfólk úr öllum lykildeildum.

Fyrirtækið viðheldur einnig ferli innan samþættra stjórnkerfa til að greina innri og ytri áhrifaþætti og áherslur hagaðilaí samræmi við ISO 9001. Þessar greiningar styðja við heildstæða áhættustýringu, auk þess sem þær mynda grunn að þróun markmiða og umbótaverkefna.

Á árinu var unnin tvöföld mikilvægisgreining með aðkomu lykilhagsmunaaðila og ráðgjafa. Þar voru metin áhrif rekstrar Norðuráls á fólk og umhverfi, sem og áhrif sjálfbærnimála á afkomu og framtíðarstöðu fyrirtækisins. Greiningin leiddi í ljós helstu sjálfbærniáhættur og tækifæri og var nýtt til að forgangsraða í sjálfbærniáætlun fyrirtækisins.

Niðurstöður umhverfisþáttagreiningar, hagaðilagreiningar og tvöfaldrar mikilvægisgreiningar eru teknar saman árlega og ræddar á rýnifundi framkvæmdastjórnar. Þær móta aðgerðir, stefnu og mælanleg markmið í sjálfbærnimálum og eru forsenda fyrir stöðugri umbótamenningu í starfsemi Norðuráls.

Greining á áhrifum, áhættu og tækifærum ESRS 2 IRO-1

Norðurál vinnur að því að innleiða ferla til að greina og meta mikilvæga sjálfbærniáhættu, neikvæð og jákvæð áhrif og viðskiptatækifæri tengd sjálfbærni. Þessi vinna styður við bæði stefnumótun félagsins og kröfur samkvæmt ESRS um áreiðanlega og gagnsæja upplýsingagjöf.

Við mat á áhrifum og áhættu nýtir Norðurál eftirfarandi greiningaraðferðir:

  • Tvöfalda mikilvægisgreiningu (double materiality) í samstarfi við ráðgjafa (Langbrók ehf.), þar sem áhrif á samfélag og umhverfi annars vegar, og áhrif á rekstur hins vegar, eru metin með þátttöku lykilhagsmunaaðila.
  • Hagsmunaaðilagreiningu, þar sem gerð er forgangsröðun hagaðila eftir vægi og tengslum við áhættu og tækifæri.
  • Umhverfisáhættu- og áhrifagreiningu (environmental aspect and impact analysis) samkvæmt ISO 14001.
  • Innri áhættugreiningu byggða á regluverki COSO og Sarbanes-Oxley (sem hluti af samstæðustjórnkerfi Century Aluminum).
  • Greiningu á ytri áhrifum og regluumhverfi, m.a. með tilliti til ETS kerfisins og þróunar kolefnisverðs.
  • Tækifæri til nýsköpunar og tækniframfara við þróun hringrásarferla og endurvinnslu.

Yfirlýsing um áreiðanleika GOV-4

Stjórn Norðuráls ehf. og framkvæmdastjórn bera endanlega ábyrgð á efni og áreiðanleika þeirrar sjálfbærniupplýsingagjafar sem sett er fram í þessari skýrslu, í samræmi við ESRS staðla samkvæmt tilskipun ESB um sjálfbærniskýrslugjöf (CSRD).

Stjórnin hefur yfirumsjón með samþættingu sjálfbærni í stefnumótun félagsins og felur framkvæmdastjórn framkvæmd og eftirfylgni sjálfbærnimarkmiða og skýrslugjafar. Framkvæmdastjórn Norðuráls ber ábyrgð á að skýrslugjöf og mælingar taki mið af innri gæðastöðlum, ISO vottuðum kerfum og gagnasöfnun úr rekstrar-, öryggis- og umhverfiskerfum fyrirtækisins.

Unnið er markvisst að því að auka samþættingu sjálfbærniþátta í áhættustýringu, fjárfestingarákvörðunum og fjármálaupplýsingum, í samræmi við ferlakröfur ESRS IRO-1 og DR 1–3.

Sérstakar aðstæður og áhættustýring ESRS BP-2

Rekstur Norðuráls ehf. á Grundartanga fer fram innan alþjóðlegrar samstæðu Century Aluminum Company og tekur mið af bæði íslenskum lögum og alþjóðlegum regluverkum um góða stjórnarhætti, innra eftirlit og áhættustýringu. Erlent eignarhald hefur að hluta til mótað nálgun félagsins í þessum efnum.

Stjórnarhættir og lagalegur rammi

Móðurfélagið gefur út leiðbeiningar um stjórnarhætti sem stjórn Norðuráls nýtir sér. Þá starfar Norðurál í samræmi við margvísleg lög og reglur, svo sem:

  • Lög um ársreikninga, einkahlutafélög, samkeppni, hollustuhætti og mengunarvarnir,
  • Persónuverndarlög og lög um peningaþvætti,
  • Rekstrarleyfi frá Umhverfisstofnun,
  • Alþjóðlegar skuldbindingar s.s. Parísarsamkomulagið.

Innra eftirlit og úttektir

Stjórn Norðuráls ber ábyrgð á innra eftirliti og virkri áhættustýringu, sem miðar við viðurkennda staðla s.s. COSO og Sarbanes-Oxley (í tengslum við markaðsskráningu móðurfélagsins í Bandaríkjunum). Deloitte og EY framkvæma úttektir á innra eftirliti í tengslum við samstæðureikninga.

Úttektir á ISO9001, ISO14001 og ISO45001 voru tvær á árinu. Í fyrri úttektinni komu fram þrjú minniháttar frávik og tólf tækifæri til úrbóta. Seinni úttektin leiddi í ljós fimm minniháttar frávik og þrettán tækifæri til úrbóta. Niðurstöður úttekta ásamt greiningum á frávikum og eftirfylgni með fyrirbyggjandi aðgerðum og tækifærum til úrbóta er að finna í ábendinga- og úttektakerfum Norðuráls. Næsta úttekt ytri aðila er áætluð í maí 2025 og aftur í desember 2025.

Í apríl 2024 var reglubundin eftirlitsheimsókn Vinnueftirlitsins þar sem meðal annars var rætt um áætlun Norðuráls um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Í júní kom Vinnueftirlitið í eftirlitsheimsókn þar sem ný framleiðslulína Norðuráls var rýnd. Í þeirri heimsókn komu fram fyrirmæli um úrbætur sem þegar var brugðist við að fullu. Umhverfisstofnun kom í reglubundna eftirlitsheimsókn í júní 2024. Í þeirri heimsókn var með annars farið yfir viðbragðsáætlanir Norðuráls. Í heimsókninni kom fram frávik sem snýr að of háum mæligildum á flúor í loftgæðamælingum á Kríuvörðu. Norðurál hefur lagt fram úrbótaáætlun sem hefur verið samþykkt af Umhverfisstofnun og unnið er eftir.

Zurich, tryggingarfélag Century, gerði sína árlegu úttekt í september. Ein ný athugasemdir kom úr úttektinni en tvær eru í vinnslu frá fyrri úttektum. Auk þess var úttekt á IST85 vottun framkvæmd og tvær úttektir á ISO vottunum.

Viðbragðs- og stjórnkerfi

Félagið nýtir samþætt stjórnkerfi þar sem atvik eru skráð í rafrænu kerfi, greind og fylgt eftir með umbótum. Viðbúnaðar- og viðbragðsáætlanir liggja fyrir og eru endurskoðaðar reglulega. Samráð við öryggis- og umhverfisnefnd, sem fundar ársfjórðungslega, tryggir tengingu við daglega starfsemi.

Norðurál hefur innleitt öfluga áhættustýringarferla þar sem áhætta félagsins er flokkuð í fjóra meginflokka:

  • Viðskiptaáhætta: Breytilegt álverð á heimsmarkaði, sveiflur í eftirspurn og alþjóðleg samkeppni.
  • Fjármögnunaráhætta: Gjaldmiðlavá þar sem tekjur eru í USD en stór hluti kostnaðar í ISK (laun, þjónusta, skattar).
  • Rekstraráhætta: Sveiflur í verði og aðgengi að raforku, súráli, rafskautum og öðrum lykilhráefnum.
  • Umhverfisáhætta: Möguleg umhverfisslys, kolefnisgjöld, breytingar á regluverki eða rekstrartruflanir vegna náttúruváar.

Áhættustýring og stjórnun á sjálfbærniskýrslugerð GOV-5

Norðurál hefur innleitt öfluga áhættustýringarferla og metur félagið að helstu áhættur þess séu: Viðskiptaáhætta, fjármögnunaráhætta, rekstraráhætta og umhverfisáhætta. Stjórn félagsins og stjórnunarteymi Norðuráls Grundartanga fær reglulega skýrslur sem taka á helstu áhættum félagsins.

Sjálfbærnistýrihópur innan Norðuráls heldur utan um innleiðingu ESRS mælikvarða og árs- og sjálfbærniskýrslugerð. Gögn eru sótt úr rekstrarkerfum Norðuráls, m.a. raforkunotkun, losun, slysaskráningu, birgjum og mannauðsgögnum.

Stjórnendur málaflokka bera ábyrgð á að tryggja réttmæti, rekjanleika og samræmi gagna við skilgreinda mælikvarða.

Stjórn félagsins og framkvæmdastjórn fá reglulega afhentar greiningarskýrslur um áhættur og áhrif á starfsemina.

Vinnumenning og gildi G1-1

Stjórnkerfi Norðuráls samanstendur af ýmsum þáttum en þar er helst að nefna gæðahandbók sem inniheldur ferla og leiðbeiningar ásamt ábendingakerfi þar sem skráð eru atvik og ábendingar. Ábendingum er fylgt eftir með fyrirbyggjandi aðgerðum og tækifærum til úrbóta. Stjórnkerfið tilheyrir allri starfsemi Norðuráls, þar með öllu starfsfólki og verktökum.

Norðurál starfar í samræmi við lög um ársreikninga, einkahlutafélög, hollustuhætti og mengunarvarnir, samkeppni, persónuvernd og peningaþvætti auk almennrar vinnulöggjafar og landslaga. Fyrirtækið uppfyllir kröfur sem settar eru fram í starfsleyfi, lögum og reglum um umhverfismál og hefur undirritað Parísarsáttmálann um samdrátt í losun utan ETS kerfis.

Lögð er áhersla á gæðavitund starfsfólks og þátttöku í umbótum í umhverfismálum, öryggi, heilbrigði og mannréttindum.

Sjálfbærniáhættumat IRO-1

Norðurál leggur ríka áherslu á greiningu og mat á helstu sjálfbærniáhrifum, áhættu og tækifærum í starfseminni. Ferlið byggir á rekstrargögnum, sjálfbærnimælingum, samtali við hagaðila og á ISO-vottuðum stjórnkerfum. Á þann hátt tryggjum við að sjálfbærni sé samþætt ákvörðunartöku, áætlanagerð og umbótastarfi félagsins.

Framkvæmd var tvöföld mikilvægisgreining í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Langbrók þar sem lykilhagaðilar lögðu mat á mikilvægustu sjálfbærniþætti fyrirtækisins. Á stefnumótunarfundi með forstjóra og stýrihópi Norðuráls var unnin hagaðilagreining sem var byggð á sjálfbærniáherslum, sameiginlegum hagsmunum, áhættum og tækifærum aðila. Hagaðilum var forgangsraðað eftir mikilvægi. Viðtöl voru tekin við viðskiptavini, birgja, sveitarfélög og móðurfélagið Century Aluminum. Niðurstöður matsins endurspegla mikilvægi sjálfbærnimála bæði frá sjónarhóli samfélagsins og fyrirtækisins (double materiality). Þar eru greind áhrif starfseminnar á fólk og umhverfi, og áhrif sjálfbærniþátta á rekstur fyrirtækisins.

Niðurstöðurnar eru nýttar sem grunnur forgangsröðunar í sjálfbærniáætlun Norðuráls og eru notaðar til að styðja við áhættugreiningu, mótun mælanlegra markmiða og þróun upplýsingagjafar í samræmi við ESRS staðla. Markmiðið er að samþætting sjálfbærnimála verði æ sterkara viðmið í stefnumótun og daglegri ákvarðanatöku fyrirtækisins í samræmi við kröfur ESRS IRO-1.

Birgjastýring G1-2

Norðurál vinnur í því að innleiða verklagsreglur og viðmið í stjórnun birgja. Birgjastýringin er mikilvægur þáttur í að tryggja ábyrga virðiskeðju, bæði umhverfislega og félagslega.

Norðurál vill setja skýrar kröfur til birgja um siðferði og samfélagslega ábyrgð. Félagið vinnur að því að auka gagnsæi og ábyrgð í allri virðiskeðju sinni og hefur hafið innleiðingu á ferlum til að meta betur áhættur og tækifæri tengd samstarfi við birgja.

Helstu meginatriði birgjastýringar:

  • Krafa um undirritaða birgjaskilmála.
  • Mat á birgjum sem tengjast framleiðsluferli Norðuráls.
  • Skyldur birgja um að fylgja lögum og kjarasamningum.
  • Notkun sérstakra matsferla fyrir vörur/þjónustu á svæðum þar sem lög og reglur í samræmi við kröfur Norðuráls, eru ekki skýrar eða virkar.

Viðskiptasambönd og ábyrgð (regluvarsla) G1-3

Norðurál hefur ekki tilnefnt regluvörð félagsins en innan móðurfélagsins, Century Aluminum, er deild sem sér um regluvörslu félaga sem undir það heyra. Innri endurskoðun félagsins er undir eftirliti innri endurskoðunardeildar Century Aluminum að viðbættri útvistun til KPMG sem framkvæmir útekt árlega á samstæðu félagsins.

Norðurál byggir upp langtímasamstarf við viðskiptavini, birgja og aðra viðskiptassaðila á grundvelli:

  • Gagnsæis, samræmis og skýrrar verkaskiptingar,
  • Skriflegra samninga með ákvæðum um ábyrgð, gæði, samfélagslega ábyrgð og umhverfisábyrgð,
  • Virks eftirlits og reglulegrar samskipta við samstarfsaðila,
  • Aðkomu sérfræðinga, stýrihóps og framkvæmdastjórnar við mat á áhættum og tækifærum innan virðiskeðjunnar.

Siðferði í viðskiptaháttum G1-4

Móðurfélag Norðuráls, Century Aluminum Company, og dótturfélög þess hafa einsett sér að ástunda gott siðferði og fara að lögum í viðskiptum um allan heim. Bandarísk og alþjóðleg lög og reglur banna spillta viðskiptahætti, s.s. óeðlilega fyrirgreiðslu og rangfærslur í bókhaldi og öðrum gögnum.

Tilgangurinn með stefnunni er að setja upp staðla og verklag sem starfsmönnum er skylt að hlíta til að tryggja að farið sé að lögum og tryggja gott orðspor fyrirtækis sem stundar heiðarleg viðskipti.

Siðareglur

Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, og öll tengd félög skuldbinda sig til þess að hlíta ströngustu kröfum um heiðarleika, siðferði og ráðvendni í viðskiptum. Stjórnendur skrifa undir siðareglur þar sem settar eru fram skýrar leiðbeiningar til þess að sporna við óheiðarleika og siðleysi í háttsemi og stuðla að því að öll starfsemi félagsins standist þessar kröfur.

Starfsfólk má ekki leyfa, bjóða, lofa né veita greiðslur í reiðufé eða öðrum verðmætum, beint eða gegnum þriðja aðila, til opinberra embættismanna eða starfsfólks fyrirtækis í einkageiranum, né til maka, sambýlisaðila, barns eða annars skyldmennis neinna slíkra aðila í þeim tilgangi að hafa áhrif á eða umbuna fyrir gjörðir eða ákvarðanatöku slíkra aðila eða til að öðlast óviðeigandi ávinning.

Á sama hátt má starfsfólk og nánasta fjölskylda þeirra ekki krefjast, samþykkja né taka við peningagreiðslum eða öðrum verðmætum beint eða gegnum þriðja aðila umfram almennar viðskiptavenjur.

Hagaðilar og starfsfólk geta á auðveldan hátt tilkynnt um grun á broti til regluvarðar (generalcouncel@centuryaluminum.com) eða nafnlaust gegnum tilkynningakerfi óháðs þriðja aðila, Ethical Advocate. Tilkynningar má senda allan sólarhringinn, alla daga, með því að hringja í síma 800 9610. Í kjölfar tilkynningar er hrint úr vör rannsókn innanhúss.

Við gerum þá kröfu að allir birgjar og samstarfsaðilar Norðuráls, hvort sem um er að ræða viðskiptavini, verktaka, umboðsmenn eða ráðgjafa, starfi af heilindum og ástundi heiðarleg viðskipti.

Norðurál er ASI vottað fyriritæki þar sem þættir eins og vinnuuumhverfi og réttindi starfsfólks, auk siðferðilegar skyldur eru rýndar. Niðurstöður úttekta má finna á finna á heimasíðu ASI.

Pólitísk áhrif og samskipti við stjórnmálaflokka og hagsmunasamtök G1-5

Norðurál styrkir hvorki stjórnmálaflokka né stjórnmálamenn. Samskipti við stjórnvöld snúast um upplýsingagjöf eins og við á.

Greiðsluskilmálar G1-6

Norðurál greiðir reikninga fyrir vöruúttektir og veitta þjónustu fyrir lok næsta mánaðar eftir úttekt, að því gefnu að reikningar berist eigi síðar en á fimmta virka degi eftir úttektarmánuð. Sjá nánar hér.

Framkvæmdastjórn

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Gunnar er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði og diplómu í viðskipta- og rekstrarfræði. Hann hóf störf árið 2021 sem stjórnandi hjá Century með yfirumsjón með rekstri allra álvera félagsins ásamt því að starfa sem forstjóri Norðuráls. Hann var framkvæmdastjóri hjá Norðuráli Grundartanga frá 2009, stjórnandi hjá ýmsum deildum hjá ÍSAL frá 2000 og verkfræðingur hjá ÍSAL 2008.
Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga Sigrún er með cand.oecon-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Norwegian School of Management (BI). Hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra álversins á Grundartanga frá 2021, áður var hún framkvæmdastjóri mannauðs og innkaupa. Áður en hún gekk til liðs við Norðurál starfaði hún hjá Kaupþingi, Kauphöllinni í Osló og Verðbréfaþingi Íslands.
Baldur Bjarnason, framkvæmdastjóri tæknisviðs Baldur er með Msc-gráðu í rafmagnsverkfræði frá DTU í Danmörku. Hann hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2011 og gegnt stöðu framleiðslusérfræðings, deildarstjóra kerstýrikerfa og deildarstjóra framleiðslustýringar.
Fjalar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri kerskála Fjalar er með Msc-gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á stjórnun og alþjóðaviðskipti, frá Háskólanum á Bifröst og Bsc-gráðu í véla- og orkutæknifræði/- frá Tækniháskólanum í Odense, Danmörku. Fjalar hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 1998 en áður hjá ráðgjafafyrirtækinu FLS Miljø í Kaupmannahöfn.
Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs Guðlaugur Bjarki hóf fyrst störf hjá Norðuráli sem sérfræðingur umhverfismála árið 2019. Hann hefur lokið MSc-gráðu í efnaverkfræði frá ETH Zürich í Sviss og er með BSc-gráðu í efnaverkfræði frá Háskóla Íslands.
Guðrún Halla Finnsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Guðrún Halla er með Bsc-gráðu í aðgerðarannsóknum með áherslu á fjármálaverkfræði frá Columbia-háskóla og Msc-gráðu í rekstrarverkfræði frá University of Southern California. Guðrún Halla hef­ur starfað hjá Norðuráli frá ár­inu 2016, en þar áður starfaði hún hjá raf­orku­fyr­ir­tæk­inu Sout­hern Cali­fornia Ed­i­son í Los Ang­eles.
Ingólfur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri steypuskála Ingólfur er með BSc-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc-gráðu í aðgerðagreiningu frá Georgia Institute of Technology. Áður en Ingólfur hóf störf hjá Norðuráli, starfaði hann hjá Marel og Alcoa Fjarðaáli.
Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Kristinn er með BA-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, Msc-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavik og er löggiltur endurskoðandi. Kristinn hef­ur starfað hjá Norðuráli frá ár­inu 2014, en áður starfaði hann m.a hjá KPMG, PWC og í fjármálageiranum.
Sigríður Harðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Sigríður er með BEd-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands og MSc-gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Sigríður hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2023 en þar áður var hún sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó bs. frá 2014-2023 og fræðslu- og mannauðsstjóri N1 frá 2005-2014.
Sólveig Kr. Bergmann, framkvæmdasjóri samskipta- og samfélagsmála Sólveig hefur BA- gráðu í mannfræði og alþjóðafræðum frá Macalester College í Bandaríkjunum og MBA- gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Áður en Sólveig hóf störf hjá Norðuráli árið 2012 starfaði hún sem fréttastjóri, fréttamaður og blaðamaður á fjölda íslenskra fjölmiðla.