Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025

Norðurál gefur nú í annað sinn út árs- og sjálfbærniskýrslu samkvæmt Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD) löggjöfinni og European Sustainability Reporting Standards (ESRS) mælikvörðunum.

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins og gegnir lykilhlutverki á Vesturlandi sem einn stærsti vinnuveitandi svæðisins. Fyrirtækið hefur um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í atvinnulífi og efnahagsþróun svæðisins og skapar verðmæti með fjölbreyttum hætti, bæði með beinum störfum og víðtækum viðskiptum við íslensk fyrirtæki og þjónustuaðila.

Með framleiðslu á áli úr endurnýjanlegri íslenskri orku er Norðurál jafnframt mikilvægur þátttakandi í alþjóðlegri virðiskeðju fyrir hráefni sem hefur jákvæð áhrif á þróun sjálfbærari samfélaga. Starfsemi fyrirtækisins byggir á þeirri sýn að skapa langtíma verðmæti á ábyrgan hátt fyrir starfsfólk, viðskiptavini, eigendur, nærsamfélag og aðra hagaðila.

Sjálfbærni er samþætt öllum þáttum starfsseminnar og byggir á þeirri sýn að skapa langtíma verðmæti fyrir eigendur, starfsfólk, viðskiptavini, birgja og nærsamfélag. Markmið Norðuráls er að reka starfsemi sína á ábyrgan hátt, stuðla að jákvæðum samfélagsáhrifum og lágmarka neikvæð áhrif á umhverfi og auðlindir.

Virðing fyrir mannréttindum, öryggi starfsfólks, góðir stjórnarhættir og vernd umhverfisins eru leiðarljós í allri starfsemi fyrirtækisins. Norðurál vinnur markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum framleiðslunnar, stuðla að ábyrgri nýtingu orku og hráefna og efla hringrásarhugsun og auðlindanýtingu í virðiskeðjunni.

Með skýrum markmiðum, öflugri áhættustýringu og stöðugum umbótum leitast Norðurál við að styrkja samkeppnishæfni sína og stuðla að sjálfbærri þróun samfélagsins til framtíðar.

Lesa nánar um sjálfbærni og samfélagsábyrgð hjá Norðuráli.