Sjálfbærni og samfélagsábyrgð

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins, einn stærsti vinnustaðurinn og einn af stærstu kaupendum íslenskrar raforku. Kjarninn í samfélagsábyrgð okkar miðar að því að skapa verðmæti á sjálfbæran og ábyrgan hátt til framtíðar, með jákvæðum áhrifum á samfélagið.

Hjá Norðuráli er lögð áhersla á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Stöðugt er unnið að því að halda umhverfisáhrifum af starfseminni í lágmarki og nýta vel orku og hráefni. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi. Lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum eða uppruna. Við leitumst við að hafa hvetjandi áhrif á alla virðiskeðju okkar og leggjum áherslu á að innkaup séu unnin af heilindum og í samræmi við gildi fyrirtækisins.

Öflug áhættustýring hefur verið innleidd hjá Norðuráli og greinist áhætta fyrirtækisins í fjóra flokka: viðskiptaáhættu, fjármögnunaráhættu, rekstraráhættu og umhverfisáhættu.

Norðurál er verulega háð verðbreytingum á áli, verði og aðgengi að orku, launakostnaði og kostnaði við öflun lykilhráefna, eins og súráls og rafskauta. Laun, skattar og ýmiss annar rekstrarkostnaður er í íslenskum krónum en tekjur fyrirtækisins að mestu í dollurum. Óhagstæðar breytingar á þessum þáttum geta haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins.

Helstu tækifæri felast í lágu kolefnisspori íslensks áls ásamt legu landsins, sem er innan markaðssvæðis þar sem mikil eftirspurn er eftir áli.

 

Helstu sjálfbærniáherslur


Framleiðsla í sátt við umhverfið

Stöðugt er unnið að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Norðurál stuðlar að aukinni umhverfisvitund og þátttöku starfsfólks í umbótum. Norðurál uppfyllir kröfur sem settar eru fram í starfsleyfi, sem og lögum og reglum um umhverfismál.

Aðgerðaráætlun í loftslagsmálum

Norðurál hefur sett sér metnaðarfull markmið um að losun gróðurhúsalofttegunda utan viðskiptakerfis ESB skuli árið 2030 hafa dregist saman um a.m.k. 40% miðað við árið 2015. Árið 2023 nam samdráttur í losun 45% og er upphaflegu markmiði því þegar náð. Við stefnum að enn frekari árangri og setjum nú markið á 55% samdrátt árið 2030.

Markviss umhverfisvöktun

Umhverfisvöktun tekur til mæliþátta í lofti, sjó og ferskvatni, húsdýrum og gróðri í og við Hvalfjörð. Þar er gengið úr skugga um að starfsemi Norðuráls hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið. Umhverfisvöktun er framkvæmd af óháðum aðilum. Árið 2023 voru tekin um 450 sýni frá 171 sýnatökustað.

Minni sóun og betri nýting verðmæta

Norðurál heldur grænt bókhald, sem er nákvæm skrá yfir allt efni sem kemur til álversins og allt sem fer frá því. Markmið okkar er að takmarka alla efnisnotkun eins og kostur er og gera ítarlega grein fyrir því hvað verður um öll efni.

Fólk í fyrirrúmi

Norðurál hagar starfsemi sinni og viðskiptum með virðingu fyrir mannréttindum. Norðurál leggur áherslu á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda, óháð kynferði, kynhneigð, trúarbrögðum eða uppruna. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og aðrar kröfur um mannréttindi og jafnrétti.

Virk þátttaka starfsfólks í forvörnum og umbótum

Norðurál hefur öryggi og heilbrigði í fyrirrúmi. Lögð er áhersla á að starfsfólk þekki áhættu og örugg vinnubrögð og að ekkert verk eigi að vinna við ótryggar aðstæður. Áhersla er lögð á virka þátttöku starfsfólks í forvörnum og umbótum. Norðurál uppfyllir lög og reglur um öryggis- og heilbrigðismál.

Uppbyggileg samskipti

Við erum hluti af stærra samfélagi sem nær til fjölskyldna okkar, nágrennis og alls umhverfisins. Við erum stolt af samfélagi okkar og viljum að samfélagið sé stolt af okkur.

Ábyrgir viðskiptahættir

Norðurál lítur á það sem hluta af samfélagslegri ábyrgð sinni að miðla þekkingu starfsfólks, jafnt til fræðasamfélagsins sem og tækni- og nýsköpunariðnaðar. Með því að stuðla að öflugu samstarfi á því sviði getur Norðurál stuðlað að skilvirkari starfsemi og mögulega samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda.

Ábyrg innkaup

Norðurál leggur áherslu á að öll innkaup séu unnin af heilindum, ábyrgð og hagkvæmni. Norðurál hagar starfsemi sinni þannig að við innkaup sé tekið tillit til gæða-, umhverfis- og heilsusjónarmiða. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og reglur um innkaup er gilda hverju sinni.

Stöðugt umbótastarf

Alltaf má gera betur á öllum sviðum. Aldrei má stoppa og láta gott heita, heldur leita leiða til að ná meiri árangri. Stöðugar umbætur eru leiðarstefið í stjórnkerfum Norðuráls og er á hverjum degi unnið að umbótaverkefnum, stórum sem smáum, með það að leiðarljósi að gera starfsemi okkar skilvirkari, öruggari, umhverfisvænni og minnka sóun.


Norðurál vinnur markvisst að fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna

5 – Jafnrétti kynjanna

Mannréttinda- og jafnréttisstefna, Mannréttinda- og jafnréttismarkmið, Jafnlaunavottun og Jafnréttisáætlun Norðuráls stuðla að því að ná 5. heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna, sem er að jafnrétti kynjanna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld.

8 – Góð atvinna og hagvöxtur

Öryggis- og heilbrigðisstefna, Markmið í öryggis- og heilbrigðismálum, Mannréttinda- og jafnréttisstefna og Mannréttinda- og jafnréttismarkmið stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla.

12 – Ábyrg neysla og framleiðsla

Gæðastefna, Gæðamarkmið, Umhverfisstefna, Umhverfismarkmið, Innkaupastefna, Innkaupamarkmið, Starfsleyfi og Umhverfisvöktun miða að því að sjálfbær neyslu- og framleiðslumynstur verði tryggð.

13 – Aðgerðir í loftslagsmálum

Umhverfisstefna, Umhverfismarkmið, Aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, Innkaupastefna og Innkaupamarkmið og þátttaka í rannsóknarverkefnum eru helstu aðgerðir Norðuráls til að vinna að 13. heimsmarkmiði SÞ. Grípa þarf til bráðra aðgerða gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra.