Fólk og samfélag
Mannréttinda- og jafnréttisstefna S1-1
Norðurál leggur áherslu á faglega mannauðsstjórnun þar sem hlutverk, sýn og gildi félagsins eru höfð að leiðarljósi. Stefna Norðuráls tengt mannauðsmálum miðar að því að skapa slysalausan og jafnframt eftirsóknarverðan vinnustað þar sem öryggi, jafnrétti og velferð starfsfólks er í fyrirrúmi.
Mannréttinda- og jafnréttisstefna
Norðurál hagar starfsemi sinni og viðskiptum með virðingu fyrir mannréttindum. Norðurál leggur áherslu á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda, óháð kyni, kynhneigð, trúarbrögðum eða uppruna. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og aðrar kröfur um mannréttindi og jafnrétti.
Mannréttinda- og jafnréttismarkmið:
- Forvarnir gegn einelti, áreitni og öðru ofbeldi
- Stuðla að jöfnun kynjahlutfalla
- Jöfn starfskjör fyrir sambærileg störf
Öryggis- og heilbrigðisstefna
Norðurál hefur öryggi og heilbrigði í fyrirrúmi. Starfsfólk þekki áhættur og örugg vinnubrögð og að ekkert verk eigi að vinna við ótryggar aðstæður. Áhersla er lögð á virka þátttöku starfsfólks í forvörnum og umbótum. Norðurál uppfyllir lög og reglur um öryggis- og heilbrigðismál.
Samskipti við starfsfólk og verktaka S1-2
Norðurál leggur áherslu á jákvætt og uppbyggjandi starfsumhverfi þar sem velferð og ánægja starfsfólks er höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á fjölbreyttar samskiptaleiðir þar sem starfsfólk og stjórnendur geta komið ábendingum, skilaboðum eða hugmyndum á framfæri.
Vinnustaðagreining
Á árinu 2025 verða voru innleiddar svokallaðar púlsmælingar þar sem starfsánægja er mæld oftar yfir árið þannig að vinna að umbótum verði markvissari. Tvær mælingar voru framkvæmdar árið 2025, í júní og október. Í maí mældist starfsánægja 7,2 af 10 mögulegum og í október mældist starfsánægjan 7,3. Svarhlutfall var um 75%.
Starfsmannasamtöl
Starfsmannasamtöl fara fram árlega þar sem starfsfólk fær tækifæri til þess að ræða við yfirmann sinn með formlegum hætti. Í starfsmannasamtölum er m.a. rætt um frammistöðu starfsfólks, starfsumhverfi, samskipti og líðan.
Starfslokasamtöl
Starfsfólki sem lætur af störfum að eigin frumkvæði býðst að fara í starfslokasamtal hjá sérfræðingi á mannauðssviði. Í slíku samtali eru m.a. farið yfir ástæður starfsloka svo unnt sé að greina tækifæri til umbóta.
Ábendingakerfi
Í gegnum ábendingakerfi Norðuráls getur starfsfólk sent ábendingar um mannauðsmál. Öryggis-, umhverfis-, og umbótasvið ber ábyrgð á ábendingakerfinu, eftirfylgni ábendinga og tryggir að ábendingar berist réttum aðilum innan fyrirtækisins.
Teams
Allt starfsfólk Norðuráls hefur aðgang að Teams, samskiptaforritinu. Á Teams eru skilgreindar rásir, bæði eftir viðfangsefnum og starfsmannahópum. Þá er þar einnig almenn rás þar sem fréttir, tilkynningar og skilaboð eru birt. Starfsfólk hefur einnig kost á að skrifa athugasemdir við fréttir, tilkynningar og skilaboð. Á Teams er einnig hægt að skrifa og senda skilaboð og/eða hringja á milli starfsfólks og stjórnenda.
Norðurljós
Norðurljós er heiti á innrivef fyrirtækisins. Á innrivef má finna ýmsar upplýsingar eins og gæðahandbók, öryggisreglur, beiðnir og pantanir, tölvuhjálp, fræðslumál, matseðil, aðgang að ábendingavef og verkefnavef, laus störf og margt fleira.
Ferlar fyrir starfsfólk til að tjá sig um viðkvæm málefni S1-3
Norðurál leggur áherslu á öryggi og velferð starfsfólks, ekki síst sálfélagslegt öryggi þar sem greindir eru áhættuþættir í vinnuumhverfinu sem tengjast skipulagi, stjórnun og samskiptum. Norðurál hefur gefið út og uppfært viðbragðsáætlun við einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og öðru ofbeldi. Slík háttsemi á vinnustaðnum er ekki liðin og er því gripið til viðeigandi aðgerða í þess konar málum þar sem jafnvel er leitað til utanaðkomandi sérfræðinga til að tryggja hlutleysi.
Fræðsla og forvarnir eru mikilvægar í þessum málaflokki. Fræðsluerindi hafa verið haldin og áhersla er á að starfsfólk taki rafrænt námskeið sem finna má á Learn Cove, fræðslukerfi Norðuráls.
Starfsfólk er hvatt til að tilkynna öll atvik eða grun um óviðeigandi háttsemi til síns yfirmanns eða hafa beint samband við mannauðsstjóra eða sérfræðinga mannauðssviðs.
Á síðasta ári barst ein formleg tilkynning um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi.
Áhættustýring tengt mannauðsmálum S1-4
Norðurál leggur ríka áherslu á að skapa öruggt, jafnréttismiðað og uppbyggilegt starfsumhverfi, í takt við stefnu og gildi fyrirtækisins. Norðurál greinir reglulega helstu áhættur sem snúa að mannauði, svo sem fráfall lykilstarfsfólks, þekking á öryggisreglum, skort á færni eða hættu á félagslegri útskúfun.
Lykiláherslur:
- Ráðningar og fjölbreytni: Norðurál fylgir faglegum ráðningarferlum til að tryggja ráðningu á hæfu starfsfólki, óháð kyni, uppruna, trú eða kynhneigð.
- Starfsþjálfun & Stóriðjuskóli: Árleg kortlagning á þjálfunarþörf starfsfólks tryggir markvissa starfsþjálfun. Norðurál hefur rekið Stóriðjuskóla frá 2012, sem eykur færni, skilning á framleiðsluferlum og starfsánægju.
- Öryggi og vinnuvernd: Öryggisreglur eru strangar og er þeim framfylgt af öllu starfsfólki á svæðinu. Fjölbreytt öryggisfræðsla og eftirfylgni atvika og verkefna er fastur liður í daglegu starfi.
- Jafnrétti og réttindi: Norðurál tryggir jafnan rétt til starfsframa, launa og tækifæra, án mismununar.
- Liðsheild og starfsánægja: Félagið leggur áherslu á að hlúa að liðsanda og ábyrgð, sem leiðir til lágrar starfsmannaveltu (um 7,5 ár meðal starfsaldur) og sterkrar vinnumenningar.
- Starfsmannafélag (STNA): Starfsmannafélagið styrkir menningu, samstöðu með viðburðum, fræðslu og félagsstarf sem eflir vellíðan og tengsl innan fyrirtækisins.
Heilsa og velferð starfsfólks (Aðgerðaráætlun gegn neikvæðum áhrifum á heilsu) S1-5
Hjá Norðuráli er mikil áhersla lögð á öryggi og vinnuvernd með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir slys og óhöpp. Öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins byggir á hugmyndafræði stöðugra umbóta og er vottað gagnvart ISO stöðlum. Áhættustýring og atvikarannsóknir eru hluti af lykilferlum stjórnkerfa Norðuráls sem tekin eru út í innri og ytri úttektum.
Til að tryggja öryggi starfsfólks, verktaka og gesta á svæðinu er gerð krafa um að allir sem starfa á og heimsækja athafnasvæði Norðuráls kynni sér öryggisreglur til hlítar. Reglurnar ná til allra sem fara inn á athafnasvæði Norðuráls; Við störfum undir slagorðinu „Öll saman!“ sem vísar til þess að öryggi er samstarfsverkefni okkar allra sem störfum hjá Norðuráli. Við gætum hvers annars og hjálpumst að við að leysa hvers kyns verkefni með skynsömum og öruggum hætti.
Skipulag og stjórnun heilbrigðis- og öryggismála hjá Norðuráli
Norðurál rekur markvisst öryggis- og heilbrigðisstjórnunarkerfi þar sem áhersla er á forvarnir, umbætur og virka þátttöku starfsfólks. Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisnefnd (ÖHU), undir forystu framkvæmdastjóra Norðuráls, samanstendur af framkvæmdastjórn, öryggisfulltrúum og trúnaðarmönnum. Nefndin stuðlar að umbótum og setur markmið í samræmi við lög nr. 46/1980.
Verkefni ÖHU nefndar og tengdra fagráða er meðal annars að veita innra eftirlit og fylgja eftir neðangreindum verkefnum:
- Áhættumat og fræðsla um öryggi og heilsu.
- Eftirlit með búnaði og aðbúnaði.
- Skráning og greining slysa, óhappa og heilsufarsatvika.
- Eftirlit með einelti, velferð og notkun persónuhlífa.
- Ráðgjöf við stefnumótun og verkferla.
Norðurál starfar eftir stöðluðum verklagsferlum byggðum á áhættugreiningu. Öll verk eru áhættuskimuð fyrir framkvæmd og starfsmenn ræða öryggismál í byrjun vaktar á daglegum töflufundum. Verktakar fá þjálfun og kynningu á öryggisreglum áður en störf hefjast.
Öruggt atferli er öryggismenningarverkefni sem byggir á þátttöku starfsfólks. Það felst í greiningu á vinnuumhverfi og verklagi með áherslu á örugga framkvæmd. Markmið eru sett og fagnað þegar öruggar venjur nást. Árið 2025 var þátttaka í verkefninu yfir 98%.
Öll öryggis- og umhverfisatvik eru skráð í ábendingakerfi Norðuráls og unnið úr þeim með aðgerðum og atvikagreiningu. Skráningar ná einnig til frávika í gæðakerfi og viðbragða við ábendingum viðskiptavina og birgja.
Norðurál leggur áherslu á stöðuga endurskoðun og umbætur í öryggis- og heilbrigðismálum með virku samtali, mælikvörðum og þjálfun starfsfólks á öllum stigum.
Öryggisþjálfun og öryggismenning á vinnustað
Öryggisþjálfun er grunnstoð í áhættustýringu Norðuráls. Allt starfsfólk fær fræðslu við ráðningu og þjálfun í öruggu verklagi samkvæmt áhættumati. Árið 2025 var lögð sérstök áhersla á þjálfun í læsingaferlum, vinnu í hæð, aðgengi að lokuðum rýmum og viðbragðsþjálfun. Þá fengu stjórnendur og verkstjórar sérstaka fræðslu um öryggismenningu og áhættustýringu.
Á árlegum starfsdögum var öryggi í forgrunni. Fjallað var um öryggis- og heilbrigðisstefnu fyrirtækisins, áhættuskimun í daglegum störfum og gullnar reglur í öryggismálum tengdar við dagleg verkefni á hverju vinnusvæði. Jafnframt var fjallað um mikilvægi réttrar notkunar öndunarhlífðarbúnaðar í samræmi við verklagsreglur.
Gullnar reglur í öryggismálum voru kynntar árið 2024 og innleiðing þeirra hélt áfram árið 2025. Reglurnar byggja á stöðluðu verklagi og lýsa hegðun sem stuðlar að slysalausum vinnustað. Starfsfólk er hvatt til að stöðva verk ef aðstæður eru ótryggar og leita leiða til að tryggja öruggt verklag.
Norðurál hefur fylgt aðferðafræðinni „Öruggt atferli“ frá árinu 2011. Markmiðið er að efla öryggisvitund og festa örugg vinnubrögð í sessi. Árangur er mældur og fagnað þegar markmiðum er náð. Árið 2025 náðist 98% þátttaka í verkefninu.
Könnun á öryggismenningu var framkvæmd árið 2024 með um 80% þátttöku starfsfólks. Niðurstöður sýndu bætta þekkingu á markmiðum, aukinn sýnileika öryggisgilda og sterkari þátttöku í forvörnum. Könnunin var áður gerð árið 2017 og sýnir mælanlegan árangur í þróun öryggismenningar.
Áframhaldandi verkefni fela í sér að styrkja sameiginlega ábyrgð, bæta öryggisþjálfun- og fundi, og auka jákvæða endurgjöf. Öryggi er sameiginlegt verkefni og lykillinn að því að gera framtíðarsýn Norðuráls um slysalausan vinnustað að veruleika.Í kjölfar könnunnarinnar voru tækifæri greind og aðgerðaáætlun hrint í framkvæmd til að ná fram stöðugum umbótum. Sem dæmi hefur verið unnið að því að gera öryggisfundi markvissari og gera allt starfsfólk að virkum þátttakendum. Breytingar hafa falið í sér endurinnleiðingu staðlaðra töflufunda í anda sýnilegrar stjórnunar um allt fyrirtækið auk þess sem fyrirkomulagi vikulegra öryggisfunda sérfræðinga og stjórnenda hefur verið breytt með aukinni áherslu á framgang umbótaverkefna.
Upplýsingar um starfsfólk (umfang og samsetning) S1-6
Í árslok 2025 störfuðu alls 705 einstaklingar hjá Norðuráli.
Skipt niður eftir:
- Kynjum (karlar 557, konur 148, annað 0)
- Starfsstöðum / hlutverki: Grundartangi 672 Norðurál EHF 33
- Ráðningartegundum: Fastráðnir 622, afleysing 79, tímabundin ráðning 4
Starfsmannavelta var 14,20%, meðalstarfsaldur og meðaldvöl í starfi 7,5 ár.
Norðurál nýtir að hluta til aðkeypta þjónustu og verktaka í afmörkuð verkefni, m.a. viðhald, tæknilausnir og þrif. Verktakar fylgja sömu öryggisreglum og annað starfsfólk og fær sömu fræðslu.
Búseta starfsfólks
- Akranes 55%
- Höfuðborgarsvæði 32%
- Borgarfjörður 7%
- Hvalfjarðarsveit 4,5%
- Annars staðar af landinu 1,5%
Verktakar Norðuráls S1-7
Fjölmargir verktakar starfa hjá Norðuráli á hverjum tíma, hvort sem er við sérfræði- eða iðnaðarstörf. Verktakar vinna í nánu samstarfi við starfsfólk og stjórnendur Norðuráls. Verktakar sem starfa innan Norðuráls eru ráðnir á grundvelli sérþekkingar eða sérhæfni á viðkomandi sviði. Um þá gilda sömu reglur og kröfur og gerðar eru til annars starfsfólks Norðuráls þegar kemur að hæfni, þekkingu og fylgni við öryggisreglur. Allir verktakar sitja reglulega námskeið um öryggismál.
Verktakar eru undir sömu öryggisreglum og fræðslu og annað starfsfólk:
- Þeir fara í öryggiskynningu og fá þjálfun áður en störf hefjast.
- Þeir þurfa að fylgja reglum Norðuráls um vinnuvernd, notkun persónuhlífa og þátttöku í ábendingakerfum.
- Samræmd ferli tryggja að verklag og aðbúnaður verktaka sé sambærilegur við reglulegt starfsfólk.
Kjarasamningar S1-8
Stærsti hluti starfsfólks Norðuráls starfar samkvæmt kjarasamningi við framleiðslu- og viðhaldsstörf eða um 476 manns. Stjórnendur, millistjórnendur, sérfræðingar og hluti skrifstofufólks er með ráðningarsamninga án tengingar við kjarasamning. Uppsagnarfrestur fastráðins starfsfólks er ein vika á reynslutíma, einn til þrír mánuðir á fyrsta starfsári en eftir það að lágmarki þrír mánuðir. Samkvæmt kjarasamningi hættir starfsfólk hjá fyrirtækinu í þeim mánuði sem það verður 67 ára. Þrír hættu vegna aldurs árið 2025. Fyrirtækið býður fólki sem er að ljúka störfum vegna aldurs á námskeið þar sem farið er yfir fjölbreytt málefni sem mikilvægt er að huga að við þessi tímamót.
Mikill meirihluti starfsfólks er aðili að stéttarfélögunum VLFA, FIT, RAFIS, StéttVest og VR. Kjarasamningur var undirritaður milli Norðuráls og félaganna í apríl árið 2025 og er hann í gildi til ársloka 2029.
Fjölbreytileiki S1-9
Fjölbreytileiki og jafnrétti eru lykilþættir í að skapa jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðarmenningu. Jafnréttismarkmið eru höfð að leiðarljósi við allar ráðningar, þar sem við hverja ráðningu er litið til þess að ráða til starfsins það kyn sem hallar á. Þannig eru tækifæri til að ráða fleiri konur í störf framleiðslustarfsfólks, iðnaðarmanna og í hóp millistjórnenda, verk- og tæknifræðinga.
Norðurál hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) á árinu 2025, líkt og undanfarin ár. Viðurkenninguna fá þau fyrirtæki sem gripið hafa til aðgerða til að jafna hlut kvenna í yfirstjórn og hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Markmiðið er að árið 2027 verði hlutfall á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Af sjö manns í framkvæmdastjórn Norðuráls voru þrjár konur.
Norðurál er með vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 og hefur einnig hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PWC fimm ár í röð eða frá upphafi jafnlaunaúttektar.
Árið 2025 framkvæmdi BSI viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfinu ásamt endurútgáfu vottorðs. Í þeirri úttekt var sannreynt að jafnlaunakerfið er hannað til að ná markmiðum og stefnu fyrirtækisins í jafnlaunamálum.
Óútskýrður launamunur heildarlauna hjá Norðuráli árið 2025 var undir 1% og skýringarhlutfall 95%.
Fullnægjandi laun S1-10
Sjá nánar í S1-8.
Félagsleg vernd S1-11
Norðurál fylgir ávallt gildandi kjarasamningum sem félagið hefur gert við viðkomandi stéttarfélög. Í kjarasamningi eru réttindi og skyldur starfsfólks tryggð, s.s. launakjör, veikindaréttur, orlofsréttur, uppsagnarákvæði, fæðingarorlof, réttindi vegna slysa og starfslok vegna aldurs.
Réttindi þeirra sem standa utan stéttarfélaga eru tryggð í ráðningasamningi þar sem sérstaklega er fjallað um veikindarétt, orlofsrétt, fæðingarorlof, réttindi vegna slysa, tryggingar, ákvæði um lífeyrssjóði, fæði og heilsustyrk.
Allt starfsfólk Norðuráls er með aðgang að almannatryggingakerfi ríkisins í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga. Þetta felur meðal annars í sér rétt til heilbrigðisþjónustu, atvinnuleysisbóta, örorkubóta, fæðingarorlofs og lífeyrissjóðsgreiðslna.
Því er 100% starfsfólks Norðuráls tryggt með aðild að almannatryggingum og enginn starfsmaður er undanskilinn slíkum réttindum.
Fólk með fatlanir S1-12
Norðurál virðir réttindi fatlaðs fólks og því er vísað til jafnréttis- og mannréttindastefnu fyrirtækisins auk þeirra laga sem málaflokkurinn tekur til. Alla jafna er því ekki mismunað á grundvelli fötlunar við ráðningar innan fyrirtækisins en taka þarf sérstakt tillit til vinnuumhverfis og hvort mögulegt sé að taka á móti fötluðum einstaklingi.
Mælikvarðar þjálfunar og hæfniþróunar S1-13
Norðurál leggur ríka áherslu á fræðslu og þjálfun starfsfólks. Starfsfólk Norðuráls hefur margvísleg tækifæri til menntunar og þróunar í starfi. Þörf fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Efnilegir starfsmenn eru hvattir til áframhaldandi þróunar og þjálfunar.
Fræðsluáætlun
Fræðsluáætlun er skipulögð til þriggja ára í senn og leggur línur varðandi þá fræðslu og þjáflun sem starfsfólk fær. Starfsfólk framleiðsludeilda rýnir einnig á hverju ári vinnuleiðbeiningar reglubundinna starfa. Auk reglubundinnar þjálfunar er stefna Norðuráls í gæða-, umhverfis-, öryggis-, mannréttinda-, og jafnréttismálum, vel sýnileg á vinnusvæði Norðuráls og samskiptamiðlum.
Mannauðs og kennslukerfi
Norðurál notar Kjarna, mannauðs- og launakerfi. Kerfið býður upp á mikla möguleika á að halda utan um upplýsingar og gögn er varða fræðslu, þjálfun og hæfni starfsfólks og hefur verið unnið í nýtingu og þróun á því. Þá var á árinu áfram lögð áhersla á innleiðingu á rafrænu fræðsluefni og var farið í framleiðslu á fræðsluefni í öryggismálum og aukinn aðgangur að ýmsikonar rafrænni fræðslu. Norðurál nýtir Learncove kennslukerfið í miðlun á rafrænni fræðslu sem nýtist vel í miðlun og eftirfylgni með framvindu.
Heildar fræðslustundir voru 9.592:
- 612 stundir í nýliðakynningu
- 2.401 stund í reglubundin öryggisnámskeið
- 556 stundir í stjórnendaþjálfun- stjórnun öryggismála
- 3.175 stundir í starfsdaga
- 2.308 stundir í annars konar þjálfun
Móttaka og þjálfun nýliða
Fólk sem hefur störf hjá Norðuráli fær nýliðaþjálfun þar sem lögð er áhersla á öryggis- og umhverfismál. Farið er yfir stefnu fyrirtækisins, framleiðsluferli og helstu áhættuþætti í starfseminni. Nýliðakynning fer fram bæði í staðbundnu og rafrænu formi og í kjölfarið tekur við sértæk þjálfun á hverri starfsstöð í samræmi við hlutverk og ábyrgð starfsins. Verktakar fá almenna öryggiskynningu árlega ásamt viðeigandi námskeiðum eftir þörfum.
Starfsdagar
Á vormánuðum voru skipulagðir árlegir starfsdagar fyrir allt starfsfólk með ýmiskonar fræðslu og vinnustofum. Þar voru tekin fyrir málefni sviða og hópa þar sem fjallað var um það sem efst var á baugi, meðal annars öryggis- og umhverfismál og umbætur í starfseminni. Þá var lögð sérstök áhersla á umfjöllun um sálfélagslegt öryggi.
Öryggisþjálfun
Mikil áhersla er lögð á hvers kyns öryggisþjálfun hvort sem er öryggi á vinnusvæði, sálfélagslegt öryggi eða upplýsingaöryggi. Reglubundin öryggisnámskeið voru stór hluti fræðslunnar árið 2025 og þar var rafræn fræðsla nýtt í auknum mæli til að tryggja gott aðgengi og samræmda miðlun efnis. Meðal slíkra námskeiða voru læsa-merkja-prófa (LMP), umferðarreglur, persónuhlífar, vinna í lokuðum rýmum, efnamál og sorpflokkun.
Stjórnendaþjálfun
Stjórnendaþjálfun var með áherslu á stjórnun öryggismála, þar sem meðal annars var fjallað um áhættustýringu, atvikarannsóknir, vettvangsskoðanir og eflingu öryggismenningar. Einnig voru námskeið og vinnustofur haldnar í samstarfi við Opna háskólann í HR undir þar sem teknir þátttakendur sátu námskeið eins og Að taka þátt í breytingum og Teymisstjórnun. Vaktstjórar, liðsstjórar og deildarstjórar tóku þátt í þessari þjálfun ásamt sérfræðingum í framleiðslu eftir þörfum.
Auk framangreindra fræðsluþátta voru haldin sérhæfð fag- og öryggisnámskeið fyrir tiltekna hópa starfsfólks. Þar má nefna námskeið á borð við Rofastjórar og Kunnáttumenn rafveitu, sem miða að öruggri og áreiðanlegri rekstrarstjórn raforkukerfa, vökvatækninámskeið fyrir vélvirkja til að styrkja tæknilega hæfni í viðhaldi og bilanagreiningu, og rafbílanámskeið fyrir starfsfólk farartækjaverkstæðis í takt við aukna rafvæðingu farartækja. Þá var einnig boðið upp á starfslokanámskeið fyrir starfsfólk 65 ára og eldra, þar sem lögð var áhersla á undirbúning fyrir starfslok, upplýsingagjöf og stuðning við breytingar sem fylgja nýjum kafla í lífinu.
Norðurál leggur ríka áherslu á fræðslu og þjálfun starfsfólks og metur þörf fyrir þjálfun og starfsþróun árlega í samræmi við hæfni, metnað og þarfir fyrirtækisins. Markmiðið er að tryggja öruggt vinnuumhverfi, faglega hæfni og stöðuga þróun í starfseminni.
Mælikvarðar heilsu og öryggis S1-14
Norðurál gerir öryggi og heilsu starfsfólks að forgangsatriði í allri starfsemi. Fyrirtækið mælir og metur árangur í öryggis- og heilsuvernd með eftirfarandi lykilmælikvörðum, sem eru í samræmi við kröfur ESRS og ISO 45001 staðalsins:
Lykilmælikvarðar:
Öryggis- og heilbrigðismarkmið:
- Slysalaus vinnustaður – að enginn slasist við störf sín
- Heilsuvernd starfsfólks - að allt starfsfólk fari í heilsufarsskoðun árlega
- Þátttaka starfsfólks í forvörnum – að 90% starfsfólks fái árlega þjálfun í öryggismálum
Jafnvægi milli vinnu og einkalífs S1-15
Það er markmið Norðuráls að vera fjölskylduvænn vinnustaður þar sem jafnvægi ríkir milli vinnu og einkalífs.
Almennt er gert ráð fyrir því að starfsfólk sinni verkefnum á sinni starfsstöð. Komið er til móts við starfsfólk þar sem því er viðkomið og því boðið að vinna í fjarvinnu þegar aðstæður og verkefni leyfa. Það er útfært á hverju sviði fyrir sig í samráði við næsta yfirmann.
Launamælikvarðar S1-16
Norðurál er með vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012. Árið 2025 framkvæmdi BSI viðhaldsúttekt á jafnlaunakerfinu ásamt endurútgáfu skírteinis. Í þeirri úttekt var sannreynt að jafnlaunakerfið er hannað til að ná markmiðum og stefnu fyrirtækisins í jafnlaunamálum. Markmið Norðuráls er að enginn óútskýrður kynbundinn launamunur sé að milli kynja. Árið 2025 var launamunur kynja undir 1%.
Árið 2025 var framkvæmd markaðslaunagreining PWC. Greiningin sýndi fram á að Norðurál greiðir sanngjörn og samkeppnishæf laun.
Ábendingar og kvartanir er varða brot á mannréttindum S1-17
Samkvæmt mannréttinda- og jafnréttisstefnu Norðuráls leggur Norðurál áherslu á jafnan rétt starfsfólks óháð kyni, kynhneigð, trúarbrögðum, uppruna eða öðru því sem snýr að mannréttindum og jafnrétti. Norðurál vinnur að stöðugum umbótum og uppfyllir lög og aðrar kröfur um mannréttindi og jafnrétti.
Einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og annað ofbeldi er ekki liðið hjá Norðuráli. Starfsfólk er hvatt til að tilkynna öll atvik eða grun um einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni og/eða annað ofbeldi til næsta yfirmanns eða mannauðsteymis.
Árið 2025 barst ein formlega tilkynning um einelti, kynferðislega og kynbundinna áreitni og/eða annað ofbeldi.
Stefna tengd aðfangakeðju S2-1
Norðurál vinnur markvisst að því að tryggja að virðiskeðja fyrirtækisins byggi á ábyrgum vinnubrögðum. Með því leitast Norðurál við að aðstæður starfsfólk, birgja, þjónustuaðila og verktaka, séu sanngjarnar og réttlátar.
Auk innkaupastefnu hafa Norðurál og móðurfélagið Century Aluminum sett fram siðareglur varðandi birgja og samstarfsaðila (Code of Ethics for Suppliers and Business Partners):
- Siðferðisleg og félagsleg ábyrgð: Birgjar og samstarfsaðilar skulu uppfylla skilmála sem kveða á um virðingu fyrir mannréttindum, bann við þvingunarvinnu og barnaþrælkun, jafnrétti og viðunandi vinnuskilyrði.
- Lögbundnar og kjarasamningsbundnar kröfur: Gerð er krafa um að allir samstarfsaðilar fari eftir gildandi lögum, reglum og uppfylli helstu atriði siðareglna Century Aluminum.
- Samþætting verktaka í öryggis- og gæðakerfi: Allir verktakar sem starfa á lóð Norðuráls fá fræðslu og aðgang að öryggisreglum fyrirtækisins. Þeir lúta sömu verklagsreglum um vinnuvernd og starfsfólk Norðuráls.
- Vinna við áhættugreiningu birgja: Norðurál hefur innleitt verklag til að meta áhættu í aðfangakeðjunni, sérstaklega á svæðum þar sem lagarammi og eftirlit er veikara.
- Viðmið og innleiðing: Unnið er að útfærslu markmiða í aðfangastjórnun í samræmi við viðmið Aluminium Stewardship Initiative (ASI) og alþjóðlegra sjálfbærnistaðla.
Verkferlar í tengslum við samskipti við starfsfólk í virðiskeðju S2-2
Norðurál gerir kröfur til birgja um virðingu fyrir mannréttindum og réttindum starfsfólks í aðfangakeðjunni með innkaupastefnu og siðareglum fyrir birgja, sem fela m.a. í sér skýrar væntingar um:
- Vinnuvernd og öryggi
- Jafnrétti og bann við mismunun
- Rétt til að stofna stéttarfélög
- Bann við þvingunarvinnu
Mat á birgjum og áhrifum í virðiskeðjunni fer fram með birgjamati og heimsóknum til birgja. Norðurál og Century Aluminum eru meðal annars í samstarfi við EcoVadis, alþjóðlegt matsfyrirtæki, sem sérhæfir sig í sjálfbærni, vinnuréttindum og siðferði í virðiskeðjum. Eco Vadis safnar og metur upplýsingar frá birgjum og öðrum í samræmi við alþjóðlega staðla.
Verkferlar til að bregðast við neikvæðum áhrifum á starfsfólk í virðiskeðjunni S2-3
Norðurál hefur sett sér það markmið að tryggja að aðilar í virðiskeðjunni virði mannréttindi, vinnuvernd, kjarasamninga og lögbundin réttindi starfsmanna. Félagið leggur áherslu á að byggja samstarf við birgja og þjónustuaðila á grunngildum um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti og öryggi.
Markmið:
- Allir lykilbirgjar og þjónustuaðilar uppfylli grunnkröfur Norðuráls um siðferði og samfélagsábyrgð.
- Unnið er að því að auka gagnsæi í virðiskeðjunni með skýrum kröfum, greiningum, söfnun gagna, úttektum og vottunum.
- Markvisst er unnið að því að draga úr áhættu tengdri mannréttindabrotum, vinnuslysum eða misrétti í aðfangakeðjunni.
Aðgerðir:
- Á árinu 2024 hófst samstarf við EcoVadis með það að markmiði að meta sjálfbærni birgja.
- Innleiddir hafa verið formlegir birgjaskilmálar með kröfum um að fylgja lögum og kjarasamningum.
- Mat fer fram á birgjum sem tengjast beint framleiðsluferli Norðuráls – t.d. fyrir hráefni, verktaka og þjónustu.
- Notaðir eru sérstakir matsferlar fyrir birgja í löndum þar sem lagarammi og verkalýðssamtök eru veikari.
Innleiðing aðgerða og árangur S2-4
Norðurál metur alla birgja samkvæmt ákveðnu ferli. Viðskipti við birgja sem teljast ekki uppfylla kröfur eru stöðvuð tímabundið eða þeim hætt.
Mótvægisaðgerðir vegna mannréttindabrota S2-5
Innkaupastefna og Siðareglur til birgja kveða á um ákvæði um mannréttindi séu uppfyllt.
Stefna tengd hagaðilum S3-1
Norðurál leggur ríka áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við nærsamfélagið og stuðli að jákvæðum áhrifum til lengri tíma. Kjarninn í samfélagsábyrgð félagsins er að skapa verðmæti á sjálfbæran og ábyrgan hátt með hliðsjón af umhverfi, efnahag og samfélagi.
Félagið vinnur markvisst að því að greina og skilja áhrif starfseminnar á samfélög og aðra hagaðila sem verða fyrir áhrifum af starfseminni. Lögð er áhersla á opið samtal, gagnsæi og regluleg samskipti við helstu hagsmunaaðila til að tryggja að sjónarmið þeirra, væntingar og áhyggjur séu höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku og stefnumótun.
Árið 2024 framkvæmdi Norðurál tvöfalda mikilvægisgreiningu og hagsmunaaðilagreiningu í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Langbrók. Markmið greiningarinnar var að kortleggja helstu áhrif, áhættur og tækifæri tengd starfsemi félagsins og efla skilning á væntingum og sjónarmiðum helstu hagaðila. Við greininguna var haft samráð við starfsfólk, sveitarfélög, eftirlitsaðila, birgja, viðskiptavini og móðurfélagið Century Aluminum. Niðurstöðurnar mynda grunn að forgangsröðun í sjálfbærnistefnu, áhættustýringu og upplýsingagjöf félagsins.
Á árinu 2025 lagði Norðurál áfram sérstaka áherslu á regluleg samskipti við nærsamfélag, starfsfólk, viðskiptavini, birgja, stjórnvöld og aðra samstarfsaðila. Samskipti fóru fram með fundum, heimsóknum, samstarfsverkefnum, opnum kynningum og annarri upplýsingagjöf. Í samskiptunum var einkum lögð áhersla á:
- áhrif starfseminnar á samfélag og umhverfi,
- áhrif samfélagslegra þátta á rekstur fyrirtækisins og langtíma verðmætasköpun, tækifæri til samstarfs og umbóta sem skapa sameiginleg verðmæti.
Norðurál leggur áherslu á að byggja upp langtíma traust og samstarf við nærsamfélagið á Grundartanga og í Hvalfjarðarsveit. Framvinda samfélagsverkefna og samskipta við hagaðila er rýnd reglulega og er hluti af sjálfbærniáherslum fyrirtækisins.
Megináherslur í samfélagsábyrgð
Samfélagsstuðningur og samstarf
Norðurál lítur á það sem mikilvægan þátt í samfélagsábyrgð sinni að styðja við fjölbreytt og uppbyggilegt starf í nærsamfélaginu. Markmiðið er að hafa jákvæð og varanleg áhrif með beinum stuðningi, virkri þátttöku og samstarfi við hagaðila. Við val á verkefnum er lögð sérstök áhersla á verkefni sem styrkja samfélagslega innviði og skapa tækifæri fyrir börn og ungmenni.
Norðurál styrkti fjölbreytt samfélagsverkefni á árinu 2025 og námu framlög félagsins á fjórða tug milljóna króna. Félagið er meðal annars stoltur styrktaraðili knattspyrnufélaganna ÍA og Vals, þar sem sérstök áhersla er lögð á starf yngri flokka. Þá er Norðurálsmótið eitt stærsta verkefnið sem styður við þátttöku ungra iðkenda í íþróttum. Einnig er í gildi samstarf við Fablab og Golfklúbbinn Leyni á Akranesi.
Auk þess veitti Norðurál styrki til fjölmargra félagasamtaka og verkefna, meðal annars Mæðrastyrksnefndar Akraness, Björgunarfélags Akraness, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Ljóssins, Fræðslu og forvarna, Bestu deildarinnar og ýmissa nemendafélaga í grunn-, framhalds- og háskólum.
Samstarf og aðild að samtökum:
Norðurál tekur virkan þátt í samstarfi við samtök og vettvanga sem styðja við sjálfbæra þróun, ábyrga viðskiptahætti og framþróun atvinnulífs:
- Aluminium Stewardship Initiative (ASI) – ábyrg og gagnsæ álframleiðsla.
- Álklasinn og European Aluminum – samkeppnishæfni og sjálfbær þróun álgeirans.
- Festa og Grænvangur – ábyrgir viðskiptahættir, loftslagsmál og græn umskipti.
- Samál,Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins – hagsmunagæsla, stefnumótun og þróun íslensks atvinnulífs.

Hagsmunir og væntingar hagaðila ESRS 2 SBM-2
Á árinu 2024 framkvæmdi Norðurál ásamt móðurfélagi sínu, Century Aluminum, tvöfalda mikilvægisgreiningu í samræmi við ESRS staðla sem hluta af undirbúningi fyrirtækisins fyrir sjálfbærniuppgjör samkvæmt CSRD. Greiningin tók bæði til áhrifa starfseminnar á umhverfi og samfélag og þeirra áhrifa sem sjálfbærnitengdir þættir geta haft á rekstur og fjárhagslega stöðu fyrirtækisins.
Niðurstöður greiningarinnar voru nýttar áfram árið 2025 við þróun sjálfbærnistefnu, forgangsröðun verkefna og áframhaldandi innleiðingu sjálfbærnimála í rekstur félagsins. Greiningin var framkvæmd í samráði við helstu hagaðila og byggði meðal annars á viðtölum, vinnustofum, gögnum úr starfseminni og mati á áhrifum, áhættu og tækifærum tengdum starfsemi félagsins.
Norðurál vinnur áfram markvisst að því að efla stjórnarhætti, gagnsæi og upplýsingagjöf um sjálfbærnimál og að samþætta sjálfbærni betur inn í daglega starfsemi og ákvarðanatöku fyrirtækisins.
Niðurstöður greiningarinnar styðja við:
- Val á efnisatriðum í árs- og sjálfbærniskýrslu félagsins.
- Langtíma stefnumótun Norðuráls í sjálfbærni.
- Forgangsröðun aðgerða sem tengjast samfélagslegri ábyrgð, umhverfis- og loftslagsmálum.
Þær staðfesta mikilvægi sjálfbærni í virðiskeðjunni, ábyrgra innkaupa og greinargóðrar upplýsingagjafar til viðskiptavina, það tryggi langtíma samkeppnishæfni og traust.
Hagaðilar leggja áherslu á:
- Heildar kolefnisspor (Scope 1–3), jákvæð áhrif græns áls fyrir endanotendur, nýsköpun og sjálfbærni.
- Ábyrgð í virðiskeðju og gagnsæi í upplýsingagjöf til viðskiptavina.
- Uppruna hráefna og ábyrga aðfangastýringu.
- Gæði gagna, rekjanleika um uppruna og vottanir.
- Áhrif framleiðslunnar á ímynd og væntingar markaða.
Áhrif, áhættur og tækifæri ESRS 2 SBM-3
Norðurál leggur ríka áherslu á að greina og skilja bæði raunveruleg og möguleg áhrif starfseminnar á nærsamfélagið. Kortlagning á viðhorfum helstu hagaðila í nærsamfélaginu og samfélagslegra væntinga er grundvöllur að markvissri sjálfbærnistefnu og upplýsingagjöf.
Tvöföld mikilvægisgreining sem framkvæmd var árið 2024 sýndi:
- Áhrif félagsins á samfélagið, sérstaklega í Hvalfjarðarsveit og nærliggjandi byggðum.
- Áhrif samfélagslegra þátta á rekstur Norðuráls, m.a. varðandi orðspor, leyfisveitingar, orkuöryggi og aðgengi að vinnuafli.
Áhrif:
- Starfsemi Norðuráls hefur jákvæð efnahagsleg áhrif á nærsamfélagið með störfum, þjónustukaupum og samfélagsverkefnum.
- Samstarf við vísinda- og menntastofnanir stuðlar að nýsköpun og þekkingarþróun.
- Norðurál framleiðir ál með lágt kolefnisspor sem styður við orkuskipti og hringrásarhagkerfið og bætir orkunýtingu og endurvinnslueiginleika í lokavöru.
- Helstu neikvæðu áhrifin tengjast mögulegum umhverfisáhrifum sem geta haft áhrif á traust samfélagsins og leyfisveitingar.
Áhættur:
- Orðsporsáhætta.
- Truflanir á starfsemi vegna skorts á sátt eða tafir í leyfisveitingum.
- Tæknilegir og rekstrarlegir örðugleikar við að uppfylla kröfur viðskiptavina.
- Áhætta tengd afhendingaöryggi og sveiflum á mörkuðum.
Tækifæri:
- Öflugra samstarfi við samfélagið og hagaðila sem styrkir traust og rekstraröryggi.
- Aukinni nýsköpun í samvinnu við vísinda- og menntastofnanir.
- Jákvæðum efnahagslegum áhrifum á svæðið í gegnum störf og þjónustukaup.
- Vaxandi eftirspurn eftir vöru með vottað kolefnisspor (t.d. Natur-Al™).
- Dýpri viðskiptatengsl og langtímasamningar við viðskiptavini sem vilja ál sem framleitt er á ábyrgan og sjálfbæran hátt.
- Aukin samkeppnishæfni Norðuráls, sem framleiðanda umhverfisvæns íslensks áls.
Ferlar í samskiptum við hagaðila (e. affected communites) S3-2
Margt í vinnubrögðum okkar er afleiðing af samræðum og samvinnu við hagaðila. Samskipti okkar við þá byggjast á skuldbindingu um gagnsæ og heiðarleg samskipti, enda mikilvægur þáttur í áframhaldandi velgengni fyrirtækisins.
Samstarf og verklag, þ.m.t. tíðni samstarfs, fer eftir eðli og hagsmunahópum. Samskiptaáætlun liggur að baki samskiptum, og samstarfs- og framkvæmdaverkefni eru skráð í stjórnkerfum Norðuráls. Birgjum okkar og verktökum er skylt að fylgja stöðlum Norðuráls í öryggis- og umhverfismálum sem og viðskiptasiðferði. Við kunnum að meta endurgjöf frá hagaðilum okkar og bregðumst við fyrirspurnum.
Viðbragðsferlar vegna hagaðila S3-3
Sjá S3-2.
Innleiðing aðgerða til að draga úr áhættu S3-4
- Norðurál starfar eftir ítarlegum, vottuðum framleiðsluferlum. Auk þess er Norðurál með vottuð umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi.
- Ítarleg upplýsingagjöf varðandi rekstur og áhrif til nærsamfélags og annarra hagaðila.
Norðurál leggur áherslu á að lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á nærsamfélag, umhverfi og aðra hagaðila með markvissum aðgerðum, virku samráði og reglubundinni eftirfylgni.
Félagið vinnur að stöðugum umbótum í rekstri með áherslu á:
- öryggi og vellíðan starfsfólks og verktaka,
- umhverfis- og loftslagsmál,
- ábyrg samskipti við nærsamfélag,
- og gagnsæja upplýsingagjöf um starfsemina.
Norðurál hefur samráð við sveitarfélög, íbúa, stjórnvöld, viðskiptavini og aðra hagaðila til að greina væntingar, möguleg áhrif starfseminnar og tækifæri til úrbóta. Ábendingar og sjónarmið hagaðila eru tekin til skoðunar við þróun starfseminnar og stefnumótun fyrirtækisins.
Á árinu 2025 lagði Norðurál áfram áherslu á:
- að efla öryggismenningu og vinnuvernd,
- að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar,
- að styrkja upplýsingagjöf og gagnsæi gagnvart nærsamfélagi,
- og að stuðla að jákvæðum samfélagsáhrifum með samstarfi og stuðningi við samfélagsverkefni.
- Vottuð stjórnkerfi Norðuráls eru með innbyggða ferla fyrir stöðugar umbætur.
- Ítarleg upplýsingagjöf varðandi rekstur og áhrif til nærsamfélags og annarra hagaðila.
Viðbrögð við áhættu og mögulegum neikvæðum áhrifum byggja á reglubundnu mati á áhrifum starfseminnar, innri verkferlum og samráði við hagaðila. Norðurál vinnur jafnframt að því að samþætta sjálfbærni og samfélagsábyrgð enn frekar inn í daglega starfsemi félagsins og ákvarðanatöku.
Markmið til að stýra áhrifum S3-5
Viðskiptavinir og neytendur – áhrif, stefna og viðbrögð S4
Norðurál starfar á alþjóðlegum mörkuðum og framleiðir ál fyrir fjölbreytt atvinnusvið, meðal annars bíla-, byggingar-, umbúða- og framleiðsluiðnað. Félagið leggur áherslu á ábyrg viðskipti, gæði framleiðslu og langtímasamstarf við viðskiptavini sína.
Norðurál vinnur markvisst að því að tryggja að vörur félagsins uppfylli kröfur viðskiptavina um gæði, öryggi, rekjanleika og sjálfbærni. Félagið leitast jafnframt við að draga úr neikvæðum áhrifum virðiskeðjunnar og styðja við aukna hringrásarhugsun og ábyrga auðlindanýtingu.
Á árinu 2025 hélt Norðurál áfram að byggja upp samstarf við viðskiptavini um sjálfbærni, meðal annars með upplýsingamiðlun um kolefnisspor framleiðslunnar, sjálfbærniviðmið og uppruna hráefna. Félagið tekur jafnframt þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum og samtökum sem styðja við ábyrga og sjálfbæra framleiðslu áls.
Greining og mat á áhættu og áhrifum vegna viðskiptavina og neytenda ESRS 2 IRO-1
Sjá nánar í GOV-2 undir Stjórnarhættir
Stefna tengd viðskiptavinum S4-1
Norðurál leggur áherslu á langtímasamstarf við viðskiptavini byggt á gagnsæi, trausti og gagnkvæmum ávinningi. Stefna félagsins er að bjóða ábyrga og rekjanlega vöru sem uppfyllir ströngustu gæðakröfur og stuðlar að markmiðum viðskiptavina í sjálfbærni.
Helstu meginatriði í stefnu Norðuráls gagnvart viðskiptavinum:
- Lágkolefnisál með vottun: Norðurál framleiðir vottað ál með einungis um 4 tonn CO₂-ígilda á hvert tonn áls. Þetta er meðal lægstu kolefnisspora í heiminum og gerir viðskiptavinum kleift að ná eigin loftslagsmarkmiðum.
- Upplýsingagjöf og rekjanleiki: Norðurál veitir skýrar upplýsingar um uppruna hráefna, orkunýtingu og kolefnisspor. Varan er rekjanleg frá hráefni til afhendingar og upplýsingar eru aðgengilegar fyrir viðskiptavini.
- Gæðatrygging og vöruábyrgð: Norðurál starfar eftir vottuðu gæðakerfi (ISO 9001) og skilgreinir vöruábyrgð samkvæmt samningum og viðurkenndum verklagsreglum.
- Samvinna um nýsköpun: Norðurál tekur virkan þátt í samstarfsverkefnum með viðskiptavinum sem miða að þróun á sjálfbærum lausnum, hringrásarhagkerfi og vistvænni vöruþróun.
- ASI vottun: Norðurál er fyrsta álframleiðslan á Íslandi sem hlýtur vottun frá Aluminium Stewardship Initiative (ASI) og tryggir þannig ábyrga viðskiptahætti og sjálfbæra framleiðslu samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum.
Ferlar til að hafa samskipti við neytendur S4-2
Norðurál á regluleg og góð samskipti við viðskiptavini. Viðskiptavinir geta fengið upplýsingar um framleiðslu vörunnar með upplýsingum úr árs- og sjálfbærniskýrslu, lífsferilsgreiningu, umhverfisyfirlýsingu vöru (EPD), úttektum og almennum heimsóknum.
Leiðir til að koma ábendingum og kvörtunum á framfæri S4-3
Ekki hafa komið upp atvik hjá Norðuráli undanfarin ár sem tengjast:
- Brotum á persónuvernd viðskiptavina eða gagnatapi.
- Gagnaleka frá kerfum Norðuráls eða samstæðunnar.
- Norðurál vinnur eftir reglum Century Aluminum um gagnavernd og notar örugg kerfi fyrir öll viðskiptasamskipti.
Markmið til að draga úr neikvæðum áhrifum og efla jákvæð áhrif fyrir viðskiptavini S4-4, S4-5
Norðurál hefur sett sér mælanleg markmið og áherslur sem miða að því að lágmarka neikvæð áhrif og hámarka jákvæð áhrif á viðskiptavini sína. Markmiðin eru hluti af sjálfbærnistefnu félagsins og stjórnkerfismarkmiðum fyrirtækisins. Þau byggja á gagnsæi, ábyrgð og samstarfi við viðskiptavini.
Helstu markmið og áherslur:
- Ánægðir viðskiptavinir: Félagið fylgist reglulega með ánægju viðskiptavina og leitast við að veita áreiðanlega þjónustu og hágæða vöru.
- Lágt kolefnisspor vöru: Markmið Norðuráls er að halda kolefnisspori álsins undir 4 tonnum CO₂-ígilda á hvert framleitt tonn, sem er um fjórðungur af alþjóðlegu meðaltali. Þetta gerir vöru félagsins að umhverfisvænni valkosti fyrir viðskiptavini sem vilja draga úr eigin losun.
- Nýsköpun og þróun: Norðurál leggur áherslu á nýsköpun og þróun ferla með sjálfbærni að leiðarljósi til að mæta auknum kröfum um umhverfisábyrgð og rekjanleika í virðiskeðjunni.
- Gagnsæi og upplýsingagjöf: Félagið tryggir ítarlega og reglulega upplýsingagjöf um uppruna, kolefnisspor og framleiðsluskilyrði vörunnar í samræmi við alþjóðleg viðmið og þarfir viðskiptavina. Þar á meðal er vottun samkvæmt Aluminium Stewardship Initiative (ASI).
Aðgerðir til að ná markmiðum:
- Samstarf við viðskiptavini um þróun lágkolefnisafurða og hringrásarlausna.
- Framleiðsluvottun samkvæmt Aluminium Stewardship Initiative (ASI).
- Notkun viðurkenndra rekjanleikaferla og gagnasöfnunar fyrir umhverfisupplýsingar.
- Upplýst þjónusta og viðbrögð við ábendingum eða kvörtunum.
Stýring áhættu og tækifæra:
- Norðurál framkvæmir reglulega næmnisgreiningu á fjárhagslegum áhrifum breytinga á hráefnismörkuðum, orkuverði og umhverfiskröfum (sbr. IRO-1).
- Markmiðin eru hluti af samþættri sjálfbærnistefnu og stýrt í samstarfi við viðskiptadeild og framkvæmdateymi sjálfbærnimála.