
Efnahagur
Skattspor Norðuráls
Norðurál er eitt af 10 stærstu fyrirtækjum landssins hvort sem horft er til efnahagsreiknings eða afkomu. Norðurál er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og tekur virkan þátt í uppbyggingu íslensks samfélags.
Rekstrartekjur Norðuráls námu um 109 milljörðum króna árið 2024 og nam hagnaður félagsins eftir skatta 2,4 milljörðum króna sama ár.
Skattslóð Norðuráls inniheldur alla helstu skatta og opinber gjöld sem félagið greiðir eða innheimtir á Íslandi, ásamt mótframlagi í almenna lífeyrissjóði starfsmanna.
Upplýsingar sem koma fram í skattspori Norðuráls er ætlað að varpa ljósi á umfang þess sem rekstur Norðurál skilar til samfélagsins í formi lögbundinni gjalda.
Norðurál skilar ýmsum öðrum verðmætum til samfélagsins í formi launa, styrkja og viðskipta innan íslenska hagkerfisins.
Skattar og opinber gjöld 2024
Samanlagt námu greiddir og innheimtir skattar ásamt opinberum gjöldum Norðuráls um 7,8 milljörðum króna árið 2024.
Skattspor Norðuráls var um 11,5 milljónir króna á hvern starfsmann árið 2024.
Skattspor Norðuráls 2024 | m.kr. | |
---|---|
Greiddir skattar og gjöld | |
Tekjuskattur | 1.677 |
Mótframlag í lífeyrissjóð | 1.393 |
Tryggingagjald | 686 |
Fasteignagjöld | 404 |
Hafnargjöld | 273 |
Kolefnisgjald (ETS heimildir) | 102 |
Umhverfisvöktun | 42 |
Aðrir skattar og gjöld | 19 |
Alls greiddir skattar og gjöld | 4.597 |
Innheimtir skattar | |
Staðgreiðsla starfsmanna | 2.501 |
Lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna | 672 |
Alls innheimtir skattar | 3.173 |
Skattspor 2024 | 7.770 |
Heildar útflutningsverðmæti Norðuráls námu rúmum 109 milljörðum króna árið 2024. Samtals námu greiðslur til innlendra aðila tæpum 50 milljörðum króna árið 2024 eða um 45% af útflutningsverðmætum það sama ár.
Skattspor félagsins nam um 7,8 milljörðum króna árið 2024. Alls störfuðu 674 starfsmenn að meðaltali hjá Norðuráli á árinu 2024 og námu heildarlaunagreiðslur til þeirra 11,4 milljörðum króna. Meðallaun á hvert stöðugildi án launatengdra gjalda námu 13,4 milljónum króna á ári eða tæpum 1,2 milljónum króna að meðaltali á mánuði.
ETS kerfið
Sú losun gróðurhúsalofttegunda sem er beintengd framleiðsluferli Norðuráls fellur undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS). Markmið þess er að draga úr losun frá framleiðslu stærri iðnfyrirtækja í Evrópu þar sem fyrirtækin þurfa að kaupa losunarheimildir. Viðskiptakerfið virkar því sem hagrænn hvati fyrir iðnfyrirtæki til að draga úr losun.
Græn fjármögnun nýrrar framleiðslulínu
Ný framleiðslulína gerir Norðuráli kleift að framleiða verðmætari vörur hér á landi með minni orkunotkun og minna kolefnisspori. Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem hleypur á um 120 milljónum dala, eða um 16 milljörðum króna. Verkefnið er fjármagnað með grænni fjármögnun hjá Arion banka. Græn fjármálaumgjörð Arion banka byggir á viðmiðum Alþjóðasamtaka aðila á verðbréfamarkaði, ICMA, og horfir til flokkunarkerfis Evrópusambandsins og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Heiðarleg viðskipti
Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, og öll tengd félög skuldbinda sig til þess að hlíta ströngustu kröfum um heiðarleika, siðferði og ráðvendni í viðskiptum. Stjórnendum eru settar siðareglur til að sporna við óheiðarleika og siðleysi í háttsemi og stuðla að því að öll starfsemi félagsins standist þessar kröfur.
Starfsfólk má ekki leyfa, bjóða, lofa né veita greiðslur í reiðufé eða öðrum verðmætum, beint eða gegnum þriðja aðila, til opinberra embættismanna eða starfsfólks fyrirtækis í einkageiranum, né til maka, sambýlisaðila, barns eða annars skyldmennis neinna slíkra aðila í þeim tilgangi að hafa áhrif á eða umbuna fyrir gjörðir eða ákvarðanatöku slíkra aðila eða til að öðlast ávinning.
Hagaðilar og starfsfólk geta á auðveldan hátt tilkynnt um grun á broti til regluvarðar generalcouncel@centuryaluminum.com eða nafnlaust gegnum tilkynningakerfi óháðs þriðja aðila, Ethical Advocate. Tilkynningar má senda allan sólarhringinn, alla daga, með því að hringja í síma 800 9610. Í kjölfar tilkynningar er hrint úr vör rannsókn innanhúss.
Við gerum þá kröfu að allir birgjar og samstarfsaðilar Norðuráls, hvort sem um er að ræða viðskiptavini, verktaka, umboðsmenn eða ráðgjafa, starfi af heilindum og ástundi heiðarleg viðskipti.