
Norðurál
Um Norðurál
Norðurál Grundartangi ehf. rekur álver á Grundartanga og framleiðir ál og álblöndur fyrir alþjóðamarkað. Fyrirtækið hefur starfsleyfi fyrir framleiðslu á allt að 350 þúsund tonnum af áli á hverju ári. Starfsstöðvar eru á Grundartanga og í Skógarhlíð í Reykjavík.
Norðurál Grundartangi ehf. er í 100% eigu Norðuráls, sem er í 100% eigu Century Aluminum Company, sem er skrásett í Bandaríkjunum. Stjórn Norðuráls Grundartanga ber ábyrgð á að skipulag og rekstur sé í góðu ástandi, ber ábyrgð á framþróun og langtímamarkmiðum Norðuráls Grundartanga og hefur eftirlit með daglegum rekstri fyrirtækisins.
Ávarp forstjóra
Norðurál er eitt af tíu stærstu fyrirtækjum landsins hvort sem horft er til veltu eða afkomu, og við erum stolt af því að vera leiðandi á okkar sviði og taka virkan þátt í uppbyggingu íslensks samfélags. Á árinu 2024 námu útflutningsverðmæti Norðuráls 109 milljörðum króna. Hlufall Norðuráls af heildar útflugningsverðmætum Íslands er því yfir 11%. Greiðslur til íslenskra aðila voru tæpir 50 milljarðar króna eða um 45% af útflutningsverðmætum, í formi opinberra gjalda, launa og innkaupa frá innlendum birgjum og þjónustuaðilum.
Það er ekki bara í krónum talið sem árangur fyrirtækja er mældur. Við viljum skapa verðmæti á sjálfbæran og ábyrgan hátt til framtíðar og með jákvæðum áhrifum á samfélagið. Við höfum tekið virkan þátt í þróunar- og nýsköpunarverkefnum þar sem leitað er leiða til að fanga og binda eða nýta það CO₂ sem losnar við álframleiðslu Norðuráls. Á árinu 2024 ákváðu Norðurál og Carbon Iceland að kanna möguleika að nýta CO₂ frá starfsemi Norðuráls til framleiðslu á grænu eldsneyti. Hvort það verði að veruleika mun tíminn leiða í ljós, en við höldum ótrauð áfram að leita leiða til að draga úr losun og stefnum enn á kolefnishlutlausa álframleiðslu á Grundartanga.
Árið 2024 hófst framleiðsla á álstöngum eða svokölluðum boltum (e.billets) í nýrri framleiðslulínu Norðuráls. Um er að ræða sívalninga úr áli sem fara í framleiðslu á margskonar vörum sem framleiddar eru með þrýstimótun. Boltarnir eru eftirsóttir af evrópskum viðskiptavinum, en ál er lykilefni við framleiðslu t.d. rafbíla, flugvéla og umhverfisvænna bygginga. Með framleiðslu á boltum er Norðurál því að færa sig nær viðskiptavinum sínum og jafnframt færa verðmætaaukninguna til Íslands. Með því að nota íslenska orku verður kolefnisspor boltaframleiðslunnar mun minna en ef hún færi fram erlendis. Þá er áætlaður orkusparnaður um 40%. Þetta verkefni var lengi á teikniborðinu hjá okkur og framkvæmdin tók meira en tvö ár sem kallaði á samvinnu og þolinmæði starfsfólks.
Fyrirtæki er ekki annað en það fólk sem þar starfar. Allur undirbúningur, framleiðsla og árangur byggist á einstaklingum sem vinna saman að sameiginlegu markmiði. Betrumbætur í rekstri, góð samskipti og árangur fyrirtækisins byggir að mestu leyti á fólkinu sem þar vinnur. Og það má með sanni segja að við hjá Norðuráli séum heppin með starfsfólk.

Árið 2024
Útflutningsverðmæti
Heildar útflutningsverðmæti Norðuráls námu rúmum 109 milljörðum. Hlutfall Norðuráls af heildar útflutningsverðmætum Íslands eru því 11,4%. Greiðslur til innlendra aðila voru tæpir 50 milljarðar króna eða um 45% af útflutningsverðmætum fyrirtækisins.
Minni losun
Við endurnýjun búnaðar er rafknúinn búnaður ávallt fyrsti kostur hjá Norðuráli. Ný framleiðslulína fyrir álsívalninga (e.billets) sem var tekin í notkun á árinu ber þess skýr merki en þar er hvergi notast við jarðefnaeldsneyti. Losun gróðurhúsalofttegunda við rekstur línunnar er því engin. Alla jafna gas eða olía við slíka framleiðslu.
Virðisaukandi framleiðsla
Við hófum framleiðslu á álsívalningum í nýrri framleiðslulínu í steypuskála. Þeir eru framleiddir fyrir kaupendur í Evrópu og verða að stórum hluta notaðir í framleiðslu rafbíla. Verkefnið var að fullu fjármagnað á Íslandi og vegna þess hve jákvæð umhverfisáhrifin eru uppfyllti það skilyrði fyrir grænni fjármögnun.
Útskrift frá Stóriðjuskóla Norðuráls
Fimmtán nemendur útskrifuðust úr framhaldnámi Stóriðjuskóla Norðuráls, en þetta er fimmti hópurinn sem útskrifast úr framhaldsnáminu. Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 og þaðan hafa 177 nemendur útskrifast. Markmiðið er að þeir starfsmenn fyrirtækisins sem ljúka náminu öðlist meiri starfsánægju og sjálfstraust með aukinni færni, þekkingu og skilningi á lykilferlum við örugga og hagkvæma framleiðslu á áli. Að sama skapi eykur námið verðmætasköpun, styrkir samkeppnisstöðu fyrirtækisins og gerir vinnustaðinn eftirsóknarverðari.
Binding í skógi
Norðurál fest kaup á 1100 vottuðum íslenskum kolefniseiningum frá Yggdrasil Carbon. Einingarnar koma frá verkefni YGG á Arnaldsstöðum í Fljótsdal en greni, fura og ösp voru gróðursett í það verkefni sumarið 2022. Kolefniseiningarnar verða ekki virkar fyrr en mælingar sýna raunverulega bindingu í skóginum, en gert er ráð fyrir því að einingar Norðuráls muni raungerast allt til ársins 2072. Ein vottuð kolefniseining verður til þegar eitt tonn af koltvísýringi, sem hefur verið mælt með viðurkenndum aðferðum og vottað sem slíkt, er dregið úr andrúmslofti eða er hindrað að berist í andrúmsloft. Um er að ræða fyrsta vottaða kolefnisbindingarverkefni á Íslandi.
Endurnýjaður samstarfssamningur
Norðurál og Faxaflóahafnir endurnýjuðu samstarfssamning vegna starfsemi Norðuráls á hafnarsvæðinu á Grundartanga. Norðurál og Faxaflóahafnir hafa lengi átt í góðu samstarfi, eða allt frá stofnun Norðuráls árið 1998.
Jafnvægisvogin
Norðurál hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024 ásamt 130 öðrum fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum. Þetta er fjórða árið sem Norðurál hlýtur viðurkenninguna. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA sem stuðlar að jöfnum hlut karla og kvenna í framkvæmdastjórnum fyrirtækja.
Framlenging
Norðurál framlengdi samstarfssamninga sína við ÍA og Val og eru nýir samningar lýsandi fyrir áherslur Norðuráls sem styrkir tugi samfélagsverkefna, bæði stór og smá. Helstu samfélagsverkefni okkar eru einmitt tengd íþróttastarfi, barna- og unglingastarfi og forvörnum. Við þökkum nágrönnum okkar á Hlíðarenda og á Akranesi fyrir gott samstarf og hlökkum til komandi ára í boltanum.
Stefna, viðskiptamódel og virðiskeðja SBM-1
Norðurál hefur skýra stefnu og viðskiptamódel sem byggir á ábyrgri álframleiðslu með lágu kolefnisspori. Norðurál fylgir sjálfbærnistefnu og íslenskum lögum og reglum. Áherslurnar eru í samræmi við alþjóðleg viðmið og endurspeglast í markmiðum félagsins í orkunýtingu, úrgangsstjórnun og öryggi á vinnustað.
Norðurál nýtir 100% endurnýjanlega orku frá íslenskum orkufyrirtækjum og leggur áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og langtímasamstarf við viðskiptavini sem gera kröfur um ábyrg hráefni. Þannig gefst fyrirtækinu tækifæri að styðja við hringrásarhagkerfi og sjálfbærni í byggingariðnaði, bílaframleiðslu og rafmagnsflutningum.
Virðiskeðjan er mótuð af kröfum um umhverfislega og félagslega ábyrgð, og sjálfbærni er samþætt stefnumótun, samningum við birgja og þjónustu við viðskiptavini.
Fyrirtækið vinnur markvisst að því að:
- Lágmarka umhverfisáhrif, sérstaklega kolefnislosun (með áherslu á Scope 1, 2 og 3),
- Tryggja öryggi og velferð starfsfólks og samfélaga,
- Bjóða upp á álframleiðslu með lágu kolefnisspori,
- Eiga traust og gagnsætt samstarf við birgja og viðskiptavini.
Stefna – Hagsmunir og viðhorf hagaðila SBM-2
Kjarninn í samfélagsábyrgð Norðuráls miðar að því að skapa verðmæti á sjálfbæran og ábyrgan hátt til framtíðar, með jákvæðum áhrifum á samfélagið. Samskipti okkar við hagaðila byggjast á skuldbindingu um gagnsæ og heiðarleg samskipti, enda mikilvægur þáttur í áframhaldandi velgengni fyrirtækisins. Samstarf og verklag, þ.m.t. tíðni samstarfs, fer eftir eðli og hagsmunahópum. Samskiptaáætlun liggur að baki samskiptum, og samstarfs- og framkvæmdaverkefni eru skráð í stjórnkerfum Norðuráls. Birgjum okkar og verktökum er skylt að fylgja stöðlum Norðuráls í öryggis- og umhverfismálum sem og viðskiptasiðferði. Við kunnum að meta endurgjöf frá hagaðilum okkar og bregðumst við fyrirspurnum.
Sjá nánar í hagaðilakafla hér [BÆTA INN HLEKK]
Áhrif, áhættur og tækifæri í virðiskeðju SBM-3
Rekstrarafkoma félagsins er háð á verði á alþjóðamarkaði á áli sem getur verið sveiflukenndur og háður mörgum þáttum sem félagið hefur ekki stjórn á. Verð á seldu áli samanstendur af þremur þáttum: (i) grunnverði, sem byggir á skráðu verði á LME markaði; auk (ii) álagi sem leggst við verð þegar selt er til Evrópu; auk (iii) hvers kyns virðisaukandi álags. Hver þessara þriggja þátta hafa sína eigin drifkrafta á breytileika. Verð á áli ræðst meðal annars af framboði og eftirspurn á heimsvísu, birgðastigi, spákaupmennsku markaðsaðila, hvað er framleitt á alþjóðlegum mörkuðum, pólitískum og efnahagslegum aðstæðum, svo og hráefnis- og öðrum framleiðslukostnaði. Þessir þættir geta verið mjög breytilegir og leitt til verulegra sveiflna á verði á mörkuðum.
Versnandi efnahagsástand á heimsvísu getur haft slæm áhrif á eftirspurn og þar með á verð á áli. Hvers konar óvissa, þar á meðal stigmögnun svæðisbundinna átaka, meiriháttar lýðheilsuvandamál eða aðrir óvæntir atburðir sem gæti leitt til samdráttar á eftirspurn eftir áli. Slíkir atburðir geta einnig haft valdið truflunum á starfsemi, á aðfangakeðju eða haft áhrif á framboð á vinnuafli.
Lækkun á álverði gæti valdið því að dregið sé úr framleiðslu eða til þess að gripið verði til aðgerða til að draga úr framleiðslukostnaði, þar með talið frestun á fjárfestingum og viðhaldskostnaði og mögulega fækkun á fjölda starfsmanna. Framangreint getur haft skaðleg áhrif á lausafjárstöðu félagsins, möguleika á aðgengi að lánsfjármagni og á rekstrarafkomu félagsins.
Raforka er einn af stærsti þátturinn í framleiðslukostnaði áls. Þar af leiðandi er framboð á raforku og að hún sé á samkeppnishæfu verði, mikilvægt fyrir starfsemi Norðuráls. Truflanir á raforkuafhendingu hefur verulega áhrif á rekstur og rekstarafkomu félagsins.
Launakostnaður, skattagreiðslur og ákveðinn annar kostnaður er í íslenskum krónum á meðan meirihluti tekna okkar er í USD. Þessir þættir tengjast allir eðlilegri starfsemi félagsins. Óhagstæðar breytingar á þessum þáttum gætu haft verulega áhrif á rekstrarafkomu
Áskoranir í virðiskeðjunni
- Hátt kolefnisspor sumra aðfanga, einkum kolefnisrafskauta og bauksíts.
- Tæknilegar og fjárhagslegar hindranir við innleiðingu hringrásarlausna.
- Aukin krafa um gagnsæi og rekjanleika í aðfangakeðju frá stjórnvöldum og kaupendum.
Tækifæri sem tengjast virðiskeðju
- Vaxandi eftirspurn eftir áli með lágu kolefnisspori, sérstaklega í Evrópu.
- Hækkandi virði rekjanlegrar og umhverfisvænnar framleiðslu – möguleiki á grænni verðlagningu.
- Aukin nýting endurunnins hráefnis og þróun á vistvænum framleiðsluaðferðum.
- Stafræn umbreyting og nýsköpun, m.a. með innleiðingu stafrænna eftirlitskerfa sem bæta mælingar, rekjanleika og skilvirkni.
Norðurál vinnur markvisst að því að lágmarka áhrifin og nýta tækifærin með:
- Skýrri stefnu um kolefnishlutlausa framleiðslu með nýtingu 100% endurnýjanlegrar orku,
- Innleiðingu á umbótaverkefnum í rekstri og ferlum (m.a. endurvinnslu),
- Samstarfi við birgja um ábyrg innkaup og lækkun á Scope 3 losun,
- Skilgreindum mælanlegum markmiðum og samþættingu sjálfbærni í rekstrarstefnu og áhættustýringu.