
Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024
Norðurál gefur nú í fyrsta sinn út árs- og sjálfbærniskýrslu samkvæmt Corporate Sustainability Reporting Directive (CSRD) löggjöfinni og European Sustainability Reporting Standards (ESRS) mælikvörðunum.
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins, einn stærsti vinnustaðurinn og einn af stærstu kaupendum íslenskrar raforku. Kjarninn í sjálfbærnistefnu Norðuráls miðar að því að skapa efnahagsleg verðmæti á sjálfbæran og ábyrgan hátt til framtíðar, og haga starfsemi okkar þannig að við hámörkum jákvæð áhrif á samfélagið. Hjá Norðuráli er lögð áhersla á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Stöðugt er unnið að því að halda umhverfisáhrifum af starfseminni í lágmarki og nýta vel orku og hráefni.
Norðurál
Norðurál Grundartangi ehf. rekur álver á Grundartanga og framleiðir ál og álblöndur fyrir alþjóðamarkað. Fyrirtækið hefur starfsleyfi fyrir framleiðslu á allt að 350 þúsund tonnum af áli á hverju ári. Starfsstöðvar eru á Grundartanga og í Skógarhlíð í Reykjavík.
Almenn upplýsingagjöf
Norðurál ehf., dótturfélag Century Aluminum Company, rekur álver á Grundartanga þar sem framleitt er ál með lágu kolefnisspori. Framleiðslan nýtir að fullu endurnýjanlega raforku úr vatnsafli og jarðvarma, og afurðir fyrirtækisins eru seldar á alþjóðlegum mörkuðum, meðal annars til bílaframleiðslu, byggingariðnaðar og raforkugeirans. Viðskiptamódel Norðuráls byggir á skilvirkri og kolefnissnauðri álframleiðslu og er sjálfbærni í auknum mæli samþætt í stefnumörkun félagsins.
Efnahagur
Norðurál er eitt af 10 stærstu fyrirtækjum landssins hvort sem horft er til efnahagsreiknings eða afkomu. Norðurál er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og tekur virkan þátt í uppbyggingu íslensks samfélags.
Umhverfi
Norðurál leggur áherslu á að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið. Stöðugt er unnið að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Norðurál stuðlar að aukinni umhverfisvitund og þátttöku starfsfólks í umbótum. Norðurál uppfyllir kröfur sem settar eru fram í starfsleyfi, lögum og reglum um umhverfismál.
Fólk og samfélag
Hjá Norðuráli starfar fjölbreyttur hópur fólks. Fjölbreytni styrkir starfsemina og hjálpar okkur að ná framúrskarandi árangri. Við leggjum áherslu á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda og högum starfsemi okkar og viðskiptum með virðingu fyrir mannréttindum að leiðarljósi. Lögð er áhersla á faglega mannauðsstjórnun þar sem hlutverk, sýn og gildi félagsins eru höfð að leiðarljósi.
Stjórnarhættir
Norðurál starfar með hliðsjón af góðum stjórnarháttum með gagnsæi og ábyrgð að leiðarljósi. Norðurál hefur komið á fót skýrum stjórnarháttum í siðferði og ábyrgum viðskiptasamböndum, byggt á stefnu móðurfélagsins og reglulegri innleiðingu á ferlum á Íslandi. Markvisst er unnið að því að betrumbæta sjálfbærnimælingar og áhættumat á sjálfbærniþáttum í samræmi við væntingar hagaðila og ESRS staðla.