Líkamsræktarkort 2012
Í mannauðsstefnu Norðuráls er lögð áhersla á hreysti og heilsueflingu og hún hvetur starfsfólk til að stunda heilsusamlegt líferni. Þó Heilsuárinu sé nú formlega lokið munum við skipuleggja nokkra fyrirlestra og viðburði á þessu ári til að styðja við starfsmenn okkar og fjölskyldur þeirra í heilsueflingu sinni.
Norðurál hefur samið um afslátt af verði líkamsræktarkorta fyrir starfsmenn og fjölskyldur þeirra (maka og börn) við íþróttamiðstöðvarnar á Akranesi, í Borgarnesi og í World Class. Því til viðbótar niðurgreiðir Norðurál hluta af verði hvers líkamsræktarkorts fyrir fasta starfsmenn. Verðin á líkamsræktarkortunum eru nokkuð mismunandi og eru útlistuð hér á eftir.
|
|
Fastir starfsmenn |
Afleysingamenn og fjölskyldur starfsmanna |
Íþróttamiðstöðin Akranesi Jaðarsbökkum |
16.810 kr. |
26.010 kr. |
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi |
19.700 kr. |
28.900 kr. |
World Class |
46.608 kr. |
55.808 kr. |
|
Verð með afslætti miðast við verðskrá íþróttamiðstöðvanna 1. febrúar 2012. Athugið að verðin geta hækkað ef breytingar verða í verðskrá íþróttamiðstöðvanna. |
Kort með afslætti eru einungis seld í gegnum Mannauðssvið Norðuráls. Ef starfsmenn vilja njóta afsláttarkjaranna er ekki hægt að kaupa kortin beint af íþróttamiðstöðvunum. Starfsmenn geta pantað kort hjá mannauðssviði (nordural@nordural.is) hvenær sem er og upphæðin er síðan dregin af næstu launagreiðslu til starfsmanns.