Norðurál og umhverfið
Öryggi, varfærni og þróun í umhverfismálum eru í fyrirrúmi hjá starfsmönnum og stjórnendum Norðuráls á Grundartanga og eru grundvöllur ákvarðanatöku varðandi alla starfsemi fyrirtækisins.
Mengunarvarnarbúnaður er samkvæmt bestu fáanlegu tækni og honum er haldið við undir skilvirku eftirliti.
Niðurstöður umhverfisvöktunar eru nýttar til umbóta með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif af starfseminni. Grænt bókhald gegnir veigamiklu hlutverki þar sem upplýsingum um endurvinnslu og förgun, auk notkunar á hráefnum, er haldið til haga.
Góð umgengni við umhverfið er lykilatriði í ábyrgum rekstri fyrirtækisins og stöðugri vöktun umhverfisþátta er ætlað að tryggja að settu marki sé náð.