Grænt bókhald
Grænt bókhald er skilgreint sem efnisbókhald þar sem fram koma upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað í starfsemi fyrirtækja. Í grænu bókhaldi koma fram tölulegar upplýsingar og er hugmyndin sú að þær geti nýst fyrirtækjum í virkri umhverfisstjórnun.
Í lögum nr. 87/2001 um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir eiga fyrirtæki sem talin eru upp í fylgjiskjali með lögunum að skila grænu bókhaldi árlega til Umhverfisstofnunar. Norðurál á Grundartanga ehf. er eitt þessara fyrirtækja og hefur skilað skilað árlegri skýrslu í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 851/2002 um grænt bókhald frá því að reglugerðin gekk í gildi.
Með bókhaldinu er almenningi veittur aðgangur að upplýsingum er varða umhverfisáhrif vegna starfsemi fyrirtækisins en bókhaldið getur nýst á marga vegu. Bókhaldið má nota innan fyrirtækisins til að fá yfirlit yfir notkun hráefna og færsla þess krefst forgangsröðunar og skipulagningar í anda umhverfisstjórnunar.
Nánari upplýsingar um grænt bókhald er að finn á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Skýrslur Norðuráls á Grundartanga ehf. um grænt bókahald:
2012 Grænt bókhald Norðuráls 2012 (pdf)
2011 Grænt bókhald Norðuráls 2011 (pdf)
2010 Grænt bókhald Norðuráls 2010 (pdf)
2009 Grænt bókhald Norðuráls 2009 (pdf)
2008 Grænt bókhald Norðuráls 2008 (pdf)
2007 Grænt bókhald Norðuráls 2007 (pdf)
2006 Grænt bókhald Norðuráls 2006 (pdf)
2005 Grænt bókhald Norðuráls 2005 (pdf)
2004 Grænt bókhald Norðuráls 2004 (pdf)
2003 Grænt bókhald Norðuráls 2003 (pdf)