Mælingar

Til að tryggja að mengunarbúnaður sé í lagi eru stöðugar mælingar gerðar á styrk vetnisflúoríðs, ryks og loftflæðis í reykháfum allra þurrhreinsivirkjanna. í daglegum rekstri er notast við tíu mínútna meðaltalsgildi til að fylgjast með búnaðinum. Styrkur brennisteinstvíoxíðs er einnig mældur í reykháfum þurrhreinsivirkjanna.

 

Við mælingu á heildarlosun efna frá álverinu er, auk mælinga í reykháfum, mæld losun á útblæstri út um rjálfur. Stöðug mæling fer fram á styrk vetnisflúoríðs út um rjáfur en mælingar á ryki og brennisteinstvíoxíði eru gerðar árlega.

 

Síumælingar á magni fastra flúoríða í reyki eru framkvæmdar árlega. Heildarlosun flúors er samanlögð tala mældrar losunar á HF gasi og áætluðu magni fastra flúoríða úr síumælingu. 

 

Samanburður á kvörðun

Norðurál gerir árlega samanburðarmælingar á öllum mælingum innan verksmiðjunnar. Samanburðarmælingarnar hafa verið framkvæmdar af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Auk þess er viðurkenndur og hlutlaus aðili fenginn annað hvert ár til að gera kvöðunarmælingar og skilgreina kvöðunarstuðla fyrir HF-, ryk-, SO2- og loftflæðimælingarnar. 

 

Að áli skaltu aftur verða

Ál hefur verið kallað græni málmurinn vegna þess hve vel það er fallið til endurvinnslu. Endurvinna má málminn aftur og aftur án þess að hann tapi eiginleikum sínum og ekkert dregur úr gæðum álsins, sama hve oft það er endurunnið. Almennur áhugi er á endurvinnslu áls enda er hún skynsamleg frá sjónarmiðum hagkvæmni, tækni og umhverfisverndar.

Allt efni © Norðurál ehf.