Vetnisflúoríð
Þegar bráðið krýólít (Na3AlF6)í raflausn rafgreiningarkerjanna kemst í snertingu við rakt loft (H2O) myndast vetnisflúoríð (HF). Vetnisflúoríðið berst með afgasi frá kerjunum Í þurrhreinsivirkin þar sem því er blandað við súrál. Vetnisflúoríðið bindst við yfirborð súrálsagnanna og er > 99,7 % af öllu vetnisflúoríði hreinsað úr afgasinu með þessum hætti.
Flúor finnst víða í náttúrunni bæði í bergi og uppleyst í sjó. Það myndar torleyst sölt með málmum og er því í lágum styrk í hafinu. Flúor í of miklum mæli getur haft skaðleg áhrif á gróður og dýralíf en helsta leið flúors inn í lífríkið er á formi vetnisflúoríðs.
Vel er fylgst með áhrifum iðnaðarsvæðisins á Grundartanga á nánasta umhverfi . Mælingar á vetnisflúoríði í andrúmslofti, styrk flúors í gróðri og sauðfé ásamt styrk flúoríðs í árvatni eru hluti af þeirri vöktun. Niðurstöður vöktunarmælinga og viðmiðunarmörk má finna í vöktunarskýrslum.