Umhverfisstefna Norðuráls hf.

Það er stefna Norðuráls að starfsumhverfi jafnt sem ytra umhverfi verði eins heilnæmt og kostur er með velferð starfsmanna, nágranna og náttúrunnar að leiðarljósi. Tryggt verður að varfærni í umhverfismálum verði eðlilegur þáttur í allri starfsemi og ákvarðanatöku. Með markvissri endurskoðun og endurumbótum á starfseminni verður sífellt reynt að ná betri árangri í umhverfismálum.

 

Til að framfylgja umhverfisstefnu Norðuráls verða eftirfarandi stefnumið höfð að leiðarljósi:

 

1. Lögð er áhersla á að uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins í umhverfismálum og sett eru fram m.a. í starfsleyfi, lögum, reglugerðum og í skipulagi.

 

2. Öll umtalsverð skaðleg umhverfisáhrif af völdum venjulegrar starfsemi og nýrra verkefna verði lágmörkuð með því að nota samþættar verklagsreglur og áætlanir um stjórnun umhverfismála. Til að framfylgja þessu verður komið á fót umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við alþjóðlega viðurkennda staðla.

 

3. Miðla og auka þekkingu á áhrifum starfseminnar bæði meðal starfsmanna sem og nágranna okkar. Áhugasamir skulu hafa aðgang að upplýsingum um frammistöðu fyrirtækisins í umhverfismálum.

 

4. Tryggja skal stöðuga athugun og endurbætur á stefnumálum, áætlunum og frammistöðu fyrirtækisins í umhverfismálum, þar sem tekið er mið af niðurstöðum stöðugrar umhverfisvöktunar, þróunar í tækni og vísindum, þarfa viðskiptavina og lögmætra óska samfélagsins.

 

5. Beita bestu fáanlegu tækni innan þeirra marka sem hagkvæmt er við mengunarvarnir.

 

6. Vera vakandi fyrir nýjum tæknilegum úrlausnum hvað varðar mengunarmál sem leitt getur til þess að losun skaðlegra efna frá fyrirtækinu minnki og hagkvæmni í rekstri aukist.

 

7. Mannvirkjum fyrirtækisins sé viðhaldið á þann hátt að þau sómi sér vel í umhverfinu og að mengunarvarnarbúnaður haldi gildi sínu.

 

8. Leitast verður við að endurnýta, senda til endurvinnslu eða stuðla að mögulegri endurheimtun úrgangs sem fellur til við framleiðsluna.

 

9. Leita sífellt leiða til að nýta endurnýtanlega orkugjafa við alla starfsemi félagsins innan þeirra marka sem hagkvæmt er.

 

10. Að framleiðslunni sé hagað þannig að heilsu og öryggi starfsmanna sé ekki stefnt í voða. Með þessi atriði að leiðarljósi vill Norðurál hf. tryggja að fyrirtækið verði í allra fremstu röð í umhverfismálum meðal fyrirtækja í sambærilegum rekstri.

 

Yfirmenn Norðuráls eiga að tryggja að starfsmenn þekki þessa umhverfisstefnu og starfi samkvæmt henni. Stjórnendur bera ábyrgð á að útfæra þessa umhvefisstefnu með því að setja mælanleg markmið í umhverfismálum á sínu starfssviði og aðlaga starfshætti að henni.

 

Allt efni © Norðurál ehf.