Almennir innkaupaskilmálar
Innkaup innanlands 13.09.2004 Útg. 1.0
Almennt
Öll innkaup hjá Norðuráli hf. fara fram með Innkaupapöntunum. Án innkaupa- pöntunar geta birgjar ekki verið vissir um að heimild sé fyrir innkaupunum. Birgjar sem afhenda vörur án innkaupapöntunar geta átt á hættu að fá vörurnar ekki greiddar. Nema annað sé sérstaklega tekið fram, gilda Innkaupapantanir aðeins fyrir það magn og þær vörur sem tilteknar eru, og hafa ekki samningsgildi umfram það.
Afhendingarskilmálar
Nema annað sé tekið fram, skulu birgjar afhenda vörur á næstu flutningastöð þess flutningsaðila sem tilgreindur er á Innkaupapöntuninni. Norðurál greiðir ekki sérstaklega fyrir flutning á flutningastöð.
Afhendingartími
Afhendingartími sem tekinn er fram á Innkaupapöntunum er miðaður við þann afhendingarstað sem tilgreindur er á Innkaupapöntuninni.
Afhendingarstaður
Vörur skulu afhentar á þeim stað sem tilgreindur er í Innkaupapöntuninni. Ef vörur eru afhentar annarstaðar en óskað var eftir, áskilur Norðurál sér rétt til að innheimta hjá birgja allan auka kostnað sem fyrirtækið kann að verða fyrir vegna þess, og draga frá greiðslu fyrir vörurnar sem keyptar voru.
Pökkun og merkingar
Öllum vörum verður að pakka þannig að þær skemmist ekki né rýrni við fluttning á áfangastað. Alla pakka verður að merkja Norðuráli, og einnig verður pöntunarnúmer að koma fram. Ef um er að ræða hættulegar vörur, verða þær að vera í viðeigandi pakkningum og merktar í samræmi við þær reglur sem um það gilda.
Greiðsluskilmálar
Norðurál greiðir reikninga fyrir vöruúttektir fyrir lok næsta mánaðar eftir úttekt, að því gefnu að reikningar berist eigi síðar en á fimmta virka degi eftir úttektarmánuð.
Upplýsingar á innkaupa pöntunum
Ef upplýsingar um vörur, verð eða annað sem fram koma á innkaupapöntunum eru ekki í samræmi við tilboð eða upplýsingar frá birgja, skulu vörur ekki afhentar, heldur skal hafa samband við Innkaupadeild Norðuráls sem annað hvort leiðréttir eða fellir niður innkaupapöntunina
Skil á vörum
Norðurál áskilur sér rétt til að skila aftur vörum til birgja innan 30 daga frá afhendingu, ef vörurnar eru ónotaðar og í upprunalegum pakkningum. Þetta á þó ekki við um vörur sem hafa verið sérpantaðar skv. óskum Norðuráls, nema vörurnar standist ekki þær vörulýsingar sem birgjar höfðu lagt fram áður en pöntun átti sér stað.
Tryggingar
Norðurál er með heildartryggingu á vörum í flutningi, og greiðir birgjum ekki sérstaklega fyrir tryggingu á vörum.
Pöntunarstaðfestingar
Ef um er að ræða pantanir með afgreiðslufresti sem er lengri en ein vika skulu þær staðfestar skriflega, annað hvort á faxi í númer 430 1001 eða með tölvupósti á innkaup@nordural.is
Hlutaafgreiðsla
Hlutaafgreiðslur á pöntunum eru ekki heimilar nema með samþykki fulltrúa innkaupadeildar Norðuráls.
Nauðsynlegar upplýsingar
Pöntunarnúmer verður að koma fram á öllum reikningum Sérstakur reikningur skal vera fyrir hverja pöntun. Upplýsingar um banka og reikningsnúmer viðtakanda greiðslu verða að koma fram á reikningum. Skortur á framangreindum upplýsingum getur leitt til þess að greiðslur dragist.
Vanefndir
Vanefni birgjar verulega skyldur sínar samkvæmt innkaupapöntunum, er Norðuráli heimilt að rifta innkaupapöntun að undangenginni áskorun til þess er vanefnir að hann láti að vanefndum innan ákveðins frests, að viðlagðri riftun pöntunar, verði vanefndirnar viðvarandi að liðnum veittum fresti.
Óviðráðanlegar aðstæður (Force Majeure)
Hvorugur aðili skal vera ábyrgur gagnvart hinum vegan vanefnda á ákvæðum innkaupapöntunar og þessara innkaupaskilmála, ef ástæður vanefndanna má rekja til óviðráðanlegra aðstæðna (Force Majeure) Aðeins er hægt að lýsa yfir Force Majeure, ef aðstæðurnar sem koma í veg fyrir efndir innkaupanna eru ekki vegan gerða þess aðila sem lýsir yfir Force Majeure og hafa átt sér stað eftir að innkaupa pontoon var gerð eða staðfest.
Framsal
Pantanir er ekki hægt að framselja að hluta til eða í heild, án skriflegs samþykkis frá Norðuráli.
Varnarþing
Ágreiningur sem kann að rísa vegna innkaupaskilmála þessara skal rekinn fyrir Héraðsdómi Vesturlands.