Norðurál byggir álver í Helguvík

 

Norðurál reisir álver í Helguvík sem verður í fremstu röð í heiminum. Kerskálar og steypuskáli álversins verða innan sveitarfélagsins Garðs á nýrri iðnaðarlóð við Berghóla, en súrálsgeymar og hafnaraðstaðan á iðnaðarsvæðinu við Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Allur búnaður í álverinu verður samkvæmt bestu fáanlegri tækni og álverið verður eitt hið umhverfisvænsta í heimi. Markvisst hefur verið unnið að undirbúningi verkefnisins frá árinu 2004. Fyrsta skóflustunga var tekin í júní 2008 og hefur síðan verið unnið við framkvæmdir á svæðinu.

 

Á rekstrartíma er gert ráð fyrir að um 600 ný störf verði til í álverinu og samtals hátt í 2000 störf sem tengjast alverinu og rekstri þess.  Áætlað er að ríflega 4.000 ársverk þurfi við byggingu álversins og um 10.000 ársverk samtals í byggingu álversins og tengdra framkvæmda eins og orkumannvirkja, hafnaraðstöðu og annarrar beinnar þjónustu.

 

Hentug staðsetning

Iðnaðar- og hafnarsvæðið við Helguvík hentar afar vel fyrir álver. Hafnaraðstaða er mjög góð, stutt er í umhverfisvæna orku og öflug þjónustu-, byggingar- og þekkingarfyrirtæki eru í nágrenninu. Um er að ræða stórt vinnumarkaðssvæði og miklu skiptir aðgangur að vel menntuðu og hæfu vinnuafli á Suðurnesjum. Stuðningur við fyrirhugað álver er mikill í samfélaginu, ekki síst í kjölfar lokunar herstöðvarinnar á Miðnesheiði. Ljóst er að heimamönnum er mikill akkur í verkefninu enda yrði mikil aukning í framboði á fjölþættum og vel launuðum störfum. 

 

Hvetjandi áhrif

Álver við Helguvík mun skapa starfsöryggi og greiða nokkru hærri laun en sambærilegar atvinnugreinar. Langur framkvæmdatími, sem stafar af áfangaskiptingu fyrirhugaðs álvers, slær á möguleg þensluáhrif á vinnumarkaði. Svæðið er vel undir það búið að taka á móti framkvæmd sem þessari þar sem atvinnuumhverfi er nokkuð fjölbreytt, margvísleg verslun og þjónusta er í boði og tiltölulega stutt er að sækja þjónustu til höfuðborgarsvæðisins. Margfeldisáhrif verða töluverð, skattgreiðslur starfsmanna og fyrirtækja aukast og sveitarfélög geta nýtt auknar tekjur sínar af sköttum og þjónustugjöldum til uppbyggingar á þjónustu í þágu íbúa sinna.

 

Áhrif í heimabyggð

Sé horft til byggðaþróunar á Suðvesturlandi er ljóst að fyrirhugað álver við Helguvík mun efla byggð á Suðurnesjum og einnig að einhverju leyti á höfuðborgarsvæðinu. Áhrifasvæðið er fýsilegt til búsetu enda hefur verið töluverð fólksfjölgun á Suðvesturlandi undanfarin ár. Á meðan á byggingu álversins stendur mun áhrifa gæta mest í þeim sveitarfélögum þar sem starfsmennirnir búa. Þessi áhrif munu einnig koma fram í kaupum álversins á vörum og þjónustu á framkvæmdatímanum en dreifing þessara áhrifa verður yfir allt áhrifasvæðið þótt gera megi ráð fyrir að þau verði mest í Reykjanesbæ og öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum.

 

Áhrif framkvæmdanna ættu aðallega að felast í því að auka atvinnu á öllu atvinnusóknarsvæðinu svo og að efla þar almennt atvinnulíf og viðskipti. Því má telja að heildaráhrif verði jákvæð fyrir sveitarfélög á áhrifasvæðinu. Talið er líklegt að skipting áhrifa verði með þeim hætti að um 65% áhrifanna muni gæta í Reykjanesbæ, um 20% í öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum og um 15% á höfuðborgarsvæðinu sem er í samræmi við það sem gerst hefur á Grundartanga.

Allt efni © Norðurál ehf.