Á dögunum barst fyrirspurn frá Foreldrafélagi Brekkubæjarskóla á Akranesi þess efnis hvort Norðurál gæti hugsað sér að styrkja krakka í 7. bekk sem voru að leita ráða til að komast í námsferð án mikils tilkostnaðar. Það varð að samkomulagi að krakkarnir mundu tína rusl á opnum svæðum í bænum s.s. við dvalarheimili aldraðra og sambýli auk fleiri staða. Þessir duglegu og framtakssömu krakkar skrifuðu síðan skýrslu um þetta verkefni sem lesa má hér