Mikill fjöldi iðkar knattspyrnu hjá ÍA og á Akranesi er aðstaða til knattspyrnu með því besta sem þekkist á Íslandi. Miðstöð íþrótta er á Jaðarsbökkum, þar sem finna má m.a. hina glæsilegu fjölnota Akraneshöll, aðalleikvang bæjarins og íþróttahús. Á Jaðarsbökkunum sjálfum eru fjölmargir knattspyrnuvellir sem njóta vinsælda á sumrin, auk sparkvalla við grunnskóla bæjarins sem nýtast allt árið um kring. Í júní fer fram Norðurálsmótið á Akranesi, sem er eitt stærsta mót yngri flokka á landinu, þar sem um 175 lið taka þátt frá fjölmörgum félögum. Ætla má að keppendur og gestir sem mæta til mótsins verði vel á fjórða þúsund.