Fyrirtækið

Álver Norðuráls á Grundartanga var gangsett í júní 1998 og var ársframleiðslan í upphafi 60.000 tonn og fjöldi starfsmanna 160.   Sumarið 2001 var hún aukin í 90.000 tonn á ári með gangsetningu annars áfanga.  Á árinu 2006 var framleiðslugetan aukin í 220 þúsund tonn og í 260 þúsund tonn árið 2007.

 

Árið 2009 framleiddi Norðurál um 278 þúsund tonn af áli.

 

Norðurál er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi. Fyrirtækið hefur skapað trausta atvinnu og átt verðugan þátt í að efla búsetu í nærliggjandi sveitarfélögum. Stefna Norðuráls er að starfsfólk komi sem mest úr nágrannabyggðum en um 80% starfsmanna eru búsett á Akranesi, í Borgarnesi og nærsveitum.

 

Norðurál er eftirsóttur vinnustaður og störfin eru fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, vélvirkjar, vélstjórar, rafvirkjar og rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast sérhæfingu við störf sín og nám hjá álverinu.

 

 

 

Norðurál Grundartanga ehf.      
Grundartanga
301 Akranes
Sími: 430 1000
Faxnúmer: 430 1001 
 
Norðurál Helguvík ehf
Stakksbraut 1 - Garði
PO Box 408
232 Reykjanesbær
Sími: 430 1200
Faxnúmer: 430 1001

Norðurál ehf.
Sími: 430 1000
Faxnúmer: 430 1001
Kt. 470404-2130
 
Tengiliður við fjölmiðla:
Ágúst Hafberg
Sími: 430 1000
GSM: 696 9508 

Allt efni © Norðurál ehf.