Stóriðjuskólinn
Norðurál vill bæta árangur í rekstri og auka hæfni ófaglærðs starfsfólks og iðnaðarmanna með því að bjóða upp á nám í stóriðju. Þeir sem ljúka stóriðjunáminu öðlast meiri starfsánægju og sjálfstraust með aukinni færni, þekkingu og skilningi á lykilferlum við örugga og hagkvæma framleiðslu á áli. Aukin þekking starfsfólks stuðlar svo að skilvirkari framleiðslu, öruggara vinnuumhverfi, bættri stjórnun, gagnkvæmum skilningi og aukinni samvinnu.
Tilgangur námsins er að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins, bæta öryggi við vinnu, efla starfs- og samskiptahæfni starfsmanna, auðvelda innleiðingu breytinga, ýta undir starfsánægju og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að afla og miðla upplýsingum og efli sjálfstraust og lífsleikni.