Fræðsla og starfsþróun
Starfsþróun og fræðsla eru lykilþættir til þess að tryggja starfsmönnum Norðuráls hæfni sem er til fyrirmyndar í áliðnaði og fyrirtækinu til hagsbóta. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á lifandi og metnaðarfullt fræðslustarf. Árið 2009 tóku starfsmenn þátt í um það bil 18.000 kennslustundum og er stefnan að viðhalda þessum góða árangri á næstu árum. Námskeið eru oft löguð að þörfum starfsfólks og þegar hægt er eru þau haldin á vinnustaðnum þar sem starfsfólk getur sótt þau á vinnutíma.
Þörf starfsmanna fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Almennt gildir sú regla að yfirmenn sviða og deilda og fræðslustjóri skipuleggja fræðslustarf (í samráði við framkvæmdastjóri hvers svið) hvort heldur sem er innan eða utan fyrirtækisins og er allt fræðslustarf háð fyrirfram samþykki þessara aðila.
Ál og samgöngur
Um fjórðungur álnotkunar heimsins í flutninga- og farartækjaiðnaði.
40 milljónir bíla eru framleiddar á ár hvert. Undanfarin ár hefur vaxandi áhersla verið lögð á að létta þá og draga úr orkunotkun og mengun. Þar eru yfirburðir álsins miklir. Vegna lítillar eðlisþyngdar áls verða farartæki mun léttari en ella og því stuðlar notkun áls að minni útblæstri koldíoxíðs og þar með minni áhrifum gróðurhúsalofttegunda.
Þá er ál einnig vinsælt í framleiðslu flugvéla. Vaxtarmöguleikarnir eru eigi að síður minni þar enda aðeins framleiddar um þúsund flugvélar í heiminum á ári.
Notkun áls í lestum fer stöðugt vaxandi og ál er einnig notað í reiðhjól og fley af ýmsu tagi. Ál gegnir mikilvægu hlutverki í skipasmiði enda færist þyngdarpunktur skipa neðar þegar ál er notað í yfirbyggingu og þar með verða skipin stöðugri.