Fræðsla og starfsþróun

Starfsþróun og fræðsla eru lykilþættir til þess að tryggja starfsmönnum Norðuráls hæfni sem er til fyrirmyndar í áliðnaði og fyrirtækinu til hagsbóta. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á lifandi og metnaðarfullt fræðslustarf.  Árið 2009 tóku starfsmenn þátt í um það bil 18.000 kennslustundum og er stefnan að viðhalda þessum góða árangri á næstu árum. Námskeið eru oft löguð að þörfum starfsfólks og þegar hægt er eru þau haldin á vinnustaðnum þar sem starfsfólk getur sótt þau á vinnutíma. 
 
Þörf starfsmanna fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Almennt gildir sú regla að yfirmenn sviða og deilda og fræðslustjóri skipuleggja fræðslustarf (í samráði við framkvæmdastjóri hvers svið) hvort heldur sem er innan eða utan fyrirtækisins og er allt fræðslustarf háð fyrirfram samþykki þessara aðila.

 

Endurvinnsla áls

Vægi endurvinnslu í áliðnaði hefur vaxið hratt á umliðnum áratugum. Mikill orkusparnaður fylgir endurvinnslunni, allt að 95% miðað við frumframleiðslu. Endurunna álið er t.d. notað við framleiðslu nýrra bíla, í vélarhluta, í klæðningar á byggingum, í reiðhjól o.fl. Í Evrópu kemur um helmingur áls, sem notað er í drykkjardósir, úr endurunnu áli. Þar er eftirspurnin gríðarleg enda eru 7 af hverjum 10 drykkjarílátum gerð úr áli.

Lítið bar á endurvinnslu áls þar til seint á sjöunda áratugi síðustu aldar, þegar vaxandi notkun drykkjardósa vakti almenning til vitundar um hana. Nú er svo komið að á Norðurlöndum, þar sem endurvinnsla álumbúða er mest í heiminum, skila sér hvorki meira né minna en 85% þeirra til baka í endurvinnslu.

 

Allt efni © Norðurál ehf.