Starfsmannafélagið
Starfsmannafélag Norðuráls hefur það hlutverk að stýra félagsstarfi og skipuleggja skemmtanir, ferðalög, fræðslu og aðra viðburði. Kosið er í stjórn félagsins til tveggja ára í senn og er fundað að jafnaði einu sinni í mánuði. Aðalfundur félagsins fer fram einu sinni á ári, að jafnaði fyrir 15. apríl.
Þegar starfsmaður hefur störf há Norðuráli gerist hann sjálfkrafa meðlimur í Starfsmannafélaginu nema hann óski eftir öðru sérstaklega. Félagsgjöldin eru 800 kr á mánuði.
Stjórn félagsins er skipuð fimm starfsmönnum, stjórnarmenn eru:
Formaður: Pétur Svanbergsson öryggisfulltrúi
Varaformaður: Brian Daniel Marshall fræðslustjóri
Gjaldkeri: Jakob Sigurðsson lagerstarfsmaður
Ritari: Valdimar Magnússon farmskjöl – búnaður í Steypuskáli
Meðstjórnandi: Ása Mýrdal Gunnarsdóttir Starfsmaður á C-vakt í Kerskála
Varamaður: Tómas H. Richardsson Starfsmaður á C- vakt Kerskála
Helstu viðburðir sem starfsmannafélagið skipuleggur eru:
Árshátíð Norðuráls sem fer fram að hausti ár hvert.
Jólahlaðborð er sérstaklega ætlað fyrir þá starfsmenn sem voru að vinna þegar árshátíðin fór fram.
Jólaball starfsmannafélagsins er haldið milli jóla og nýjárs og er ætlað fyrir börn starfsmanna Norðuráls.
Sumarhátíð Norðuráls er haldin árlega og er boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Félagsstarf
Stjórn starfsmannafélagsins veitir styrk á hverju ári til ýmissa sjálfstæðra félaga innan Norðuráls.
Meðal félaga eru:
Veiðifélag Norðuráls
Spilaklúbbur Norðuráls
Golfklúbbur Norðuráls
FC Norðurál
Viðbótarfélagsgjöld eru fyrir þátttöku og er það mismunandi eftir hverju og einu. Allir nýjir meðlimir eru velkomnir og er starfsmönnum bent á að leita til meðlima í stjórn Starfsmannafélgsins til frekari upplýsinga.
Hugvit í stað handafls
Í nútímalegu álveri eins og hjá Norðuráli byggist framleiðslan á háþróaðri tækni. Þekking, hugvit og kunnátta hafa leyst handaflið af hólmi. Framleiðsluferlið er tölvustýrt, tækjabúnaður er að hluta hátæknilegur og gerðar eru ríkar kröfur til færni starfsmanna sem fylgjast með ferlinu og grípa inn í ef þörf krefur. Álver eru þannig gott dæmi um hvernig rótgrónir atvinnuvegir geta nýtt sér það besta sem tæknisamfélagið býður upp á til að auka afköst, gæði og öryggi framleiðslunnar.